16.7.2011 | 16:27
Glæsilegt að sjá þetta!
Bráðabirgðabrúin yfir Múlakvísl er einbreið. Ég sé að einhverjir eru að líkja henni við göngubrú.
Engu að síður horfði ég það úr lofti í hádeginu áðan þegar fyrsta rútan fór yfir brúna og það var eftirminnilegt að horfa á brúarvinnuflokkana, verktakana og aðra, sem hafa verið í ferjuflutningum, ganga fyrst yfir brúna og síðan var það í góðu lagi að hafa myndavélar á lofti og taka myndir af því þegar ráðherrann ók yfir og síðan bílalestirnar sitt hvorum megin frá.
Ef tími gefst til bregð ég kannski einhverjum myndum inn í pistilinn og Sjónvarpið fékk frá mér kvikmyndir.
Þetta er ekki glæsilegasta brú á Íslandi, satt er það. En umhverfið er glæsilegt í veðri eins og var í dag og glæsileg sýn sem blasti við ofan úr flugvélinni TF-TAL.
Fylktu liði yfir brú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála Ómar. Þeir sem komu að vinnu við þessa brú eiga mikið hrós skilið. Sem og aðrir sem sáu um selflutninga yfir ánna á meðan verið var að byggja hana.
Number Seven, 16.7.2011 kl. 18:29
Húrra fyrir þeim!
Úrsúla Jünemann, 16.7.2011 kl. 21:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.