Blóm í hnappagat Vegagerðarinnar.

Öll spjót stóðu á Vegagerðinni þegar brúin yfir Múlakvísl sópaðist í burtu og allt ætlaði vitlaust að verða þegar því var lýst yfir að minnst 2-3 vikur tæki að koma á vegasambandi að nýju.

Enn frekar jókst svartsýnin þegar með fylgdi að nú væri sumarleyfistíminn og erfitt að smala saman mannskap.

Nú hefur komið í ljós að betra var að fara varlega í að gefa áhættusöm bjartsýnissvör en láta heldur verkin tala.

Og það hefur svo sannarlega verið gert.

Opnun brúarinnar fyrir umferð á morgun er rós í hnappagatið fyrir Vegagerðina.

Það er ekki á hverjum degi sem reist er brú, sem er tvöfalt lengri en Ölfusárbrú á aðeins einni viku, jafnvel þótt um bráðabirgðabrú sé að ræða.

Vegagerðin, bravó! Bravó! Bravissimó!


mbl.is Opnað fyrir umferð á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.7.2011 kl. 22:01

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.7.2011 kl. 22:02

3 Smámynd: Dexter Morgan

Rós frá mér, takk fyrir !

Dexter Morgan, 16.7.2011 kl. 00:17

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ómar. Sammála þessu.  Þökkum fyrir vel unnið verk, á mettíma.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.7.2011 kl. 00:22

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

eina ríkistofnunin á íslandi sem stendur undir nafni

Óskar Þorkelsson, 16.7.2011 kl. 00:56

6 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þarf ekki að athuga hvað yfirlýsing Vegagerðarinnar kistaði þjóðfélagið.Og er einhver ástæða til þess að hrósa Vegagerðinni fyrir að gera það sem hún á að gera.Það var ekki unnið allan sólahringinn þótt nóg sé af mannskap í landinu sem er atvinnulaus, verktakar sem vanir eru mannvirkjagerð.Og það var ekki byrjað á neinu fyrr en að sólahring liðnum frá því brúin fór.En björgunarsveitirnar eiga hrós skilið og ekki í fyrsta skiptið.Það var fyrir þrýsting ferðaþjónustunnar sem verkið var unnið á styttri tíma en ráð var fyrir gert. 

Sigurgeir Jónsson, 16.7.2011 kl. 09:50

7 Smámynd: Number Seven

Sammála Sigurgeiri.  Við ættum að hrósa björgunarsveitunum fyrst og fremst.  Vegagerðin er að fá greitt margfalt fyrir þetta verkefni meðan björgunarsveitirnar eru þarna í sjálfboðavinnu. 

 Það kom aldrei til greina að hringvegurinn um Ísland yrði lokaður í 3 vikur.  Sú yfirlýsing vegagerðarinnar var til algjörrar skammar og sýnir augljóslega þann seinagang og dund sem yfirleitt er á þeim bæ.  Mikill þrýstingur var settur á vegagerðinna og þeir gerðu það sem þeim bar að gera miðað við þær aðsæður sem upp voru komnar í landinu.

 Svo er það náttúrulega alltaf spurning um hvort brúinn hefði átt að fara við hlaupið.  Vonandi vekur þetta hlaup vegagerðina af værum svefni og fær þá til að skoða aðstæður í kring um fleiri jökulár.  Ef að framburður er að koma í veg fyrir að brýr standist jökulhlaup sem þær voru upprunnalega gerðar fyrir að þola - þá er það hverra að kippa því í lag?  

 Vonandi sest vegagerðin líka yfir teikningar af varnargörðum og vegum í kjölfar þessa.  Verkfræðilega séð á brú að vera það síðasta sem fer þegar stórflóð koma í jökulár.  Vegir og varnargarðar eru yfirleitt hannaðir þannig að þeir gefi sig löngu áður en reynir á brúnna.  Því var hinsvegar ekki að heilsa í þessu tilfelli.  

Number Seven, 16.7.2011 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband