24.7.2011 | 15:11
Gott að það var ekki eldgos.
Ef það hefði verið eldgos í gangi og sand- og ökumistur legið yfir landinu er næsta víst að í London hefðu menn, sitjandi yfir tölvum, stöðvað allt flug á landinu.
Enda er ösku- og sandmagnið í loftinu nú miklu meira en var suma daga á eldgosatímanum í fyrra og í vor.
Undarleg sýn við Breiðafjörð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hárrétt Ómar, var á Haukadalsmelum við Heklu í gær og þar var ca 5 km skyggni í 20-30 hnútum og öskufoki, sem maður bruddi og strauk úr vitum. En það var bara enginn í London sem vissi af þessu. Stórt öskuský sást á leiðinni uppeftir í kringum Ingólfsfjall á vesturleið, líklega það sem sagt er frá í þessari frétt.
Hvumpinn, 24.7.2011 kl. 15:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.