8.9.2011 | 19:39
Einn maður, ein hugmynd á við milljarða verksmiðju.
Magnús Scheving og afrek hans eru dæmi um það hverju hægt er að áorka án þess að einblína á framleiðslu sem krefst gríðarlegra fórna á náttúruverðmætum eins og verið hefur trúarsetning hér á landi.
Þetta hefur ekki alltaf verið dans á rósum hjá Magnúsi en hann hefur aldrei gefist upp og aldrei misst sjónar á takmarki sínu.
Nefna má fleiri fyrirtæki hér á landi, svo sem CCP og Össur, þar sem máttur hugans og menntunarinnar hafa skilað milljarðatugum í þjóðarbúið í trássi við hæðnisorð um "eitthvað annað" o. s. frv.
Menntun og hæfileikar þjóðarinnar eru nefnilega verðmæt auðlind og lykillinn að efnahagslegri velgengni hennar.
Vörumerki á heimsmælikvarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
En ekkert fast í hendi. Eins og í dýraríkinu lenda hinir smáu í kjaftinum á hákörlum og hvölum. Hér eru íslensk fyrirtæki smá og veikburða. Fjámála og stjórnmálkerfið vanmáttugt til að skapa sambærilegt umhverfi og í næstu nágrannalöndum. Hrópað er á útlendinga og stór fyrirtæki sem fá ívinlanir og forréttindi um fram innlend. Vegur vaxtamunurinn mest. Magnús Scheving prísar nú að þurfa ekki að eyða tímanum í bönkum. Hef aldrei skilið hvers vegna við viljum ekki notast við gjalmiðill eins og dollar eða evru. Menntun nýtist ekki að fullu nema grunnurinn sé góður.
Sigurður Antonsson, 8.9.2011 kl. 20:55
Það er synd, þegar hörku duglegur einstaklingur verður að selja frá sér lífsstafið, vegna græðgi lánveitenda, hverjir sem þeir eru.
Ég hef oft séð góða þætti í sjónvarpinu (erlend), um fólk sem hefur byggt upp stórfyrirtæki með hugviti og dugnaði og rekur þau með sóma í áratugi, án þess að bankarnir reyni að ræna og rupla frá þeim lífsstarfinu. IKEA, sem Íslendingar þekkja, er eitt dæmi af hundruðum. Að vísu á Ingvar sinn eginn banka í London í dag og er laus við skúrkana.
V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.9.2011 kl. 12:01
Hann ætti að búa til annað vörumerki sem heitir aurabær og kenna börnum að búa til aura án þess að skemma landið. Það yrðu vinsælir diskar á mínu heimili
Ásta María H Jensen, 9.9.2011 kl. 14:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.