Varla húrrahróp á þessari öld.

Forðum tíð, jafnvel fyrir þúsundum ára, var talað um sjö mögur ár og sjö feit ár, sem einatt kæmu á víxl.

Vísindamenn hafa fundið út að talsvert var til í þessu, einkum varðandi veðurfar.

Uppsveifluárin á undan 2008 voru tæplega sjö, þegar allt tútnaði út svo að það sýndist vera fita, sem bjó til þessi feitu ár, en reyndist síðan vera loft.

En nú er mannkynið á endastöð rúmlega heillar aldar sem fól í sér feitustu ár allra tíma og verður kennd við drifkraft hennar, olíuna.

Öldin sem nú er að taka við verður öld hinna mögru ára þegar kemur að skuldadögunum á öllum sviðum.

Því miður eru ekki miklar líkur á því að ósk Steingríms J. Sigfússonar um að enginn fjármálaráðherra á eftir honum þurfi að standa að erfiðum fjárlögum. 

"You ain´t seen nothing yet" sagði forseti vor í fyrra um íslensku eldgosin, en hefði alveg eins getað sagt það um öldina, sem við siglum inn í, öld hinna síversnandi mögru ára hruns olíualdarinnar og nánast allra þeirra gæða, sem sífjölgandi mannkyn nýtur og lifir á.

Síðan er spurningin hve mörg húrrahróp á að hrópa fyrir þeirri lýsandi fyrirmynd annarra þjóða sem forsetinn segir nú við erlenda fjölmiðla að við séum varðandi Hrunið og úrvinnsluna úr því.

Á sama hátt og í eyru útlendinga var því haldið fram að við værum í fararbroddi í fjármálasnilli og fyrirmynd annarra þjóða, erum við nú orðnir snillingar í að vinna úr þeim ósköpum sem hin snillin færði okkur.

"Snilld" okkar nú fólst í því að við snuðuðum aðrar þjóðir um þúsundir milljarða króna með því að láta bankana fara á hausinn og munu þýskir aðilar til dæmis einir hafa tapað átta þúsund milljörðum á afleiðingum tvöfaldrar snilli okkar.  

 


mbl.is Engin húrrahróp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æi, já, þú hefur víst rétt fyrir þér eins og oftar, Ómar. Spurningin er meðal annars sú, hvernig ætlum við að knýja samgöngur okkar og fiskiskip þegar engin olía fæst lengur? Hvernig ætlum við að nýta raforkuna okkar í framtíðinni? Á bara að framleiða ál og handa hverjum? Hvað er eftir af óráðstöfuðum og hagkvæmum orkukostum til að nýta í þágu samgangna?

Bergþurs (IP-tala skráð) 21.9.2011 kl. 21:40

2 identicon

Raforkan yrði okkar "olía" í framtíðinni ef við verðum ekki búin að asnast til að ráðstafa henni allri til stóriðju. Það er enn nóg til af virkjanlegri orku til að knýja bílaflota landsmanna....held ég.

Jón Logi (IP-tala skráð) 22.9.2011 kl. 08:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband