Búið var að útrýma vændi og samkynhneigð í Sovétríkjunum !

Eitt af því sem kommarnir í Sovétríkjunum sálugu státuðu sig af var það að búið væri að útrýma vændi með hinu fullkomna þjóðskipulagi að ekki var nú talað um samkynhneigð, sem ekki væri til í landinu!  

Ekki var okkur þó greint frá því hvernig tekist hefði að "afhomma" menn þar eystra ef þess hafði þá nokkurn tíma þurft.

Þegar við hjónin komum í reynsluaksturferðalagi norrænna bílablaðamanna til Murmansk 1978 staðhæfðu Rússarnir þetta fullum fetum.

Í hóp okkar voru nokkrir lausir og liðugir blaðamenn og varla var dagurinn liðinn þegar þeir höfðu fengið tilboð frá starfandi vændiskonum í neðanjarðarhagkerfinu sem þarna blómstraði kröftuglega, enda Murmansk hafnarborg  og þar örlítil rifa á því fangelsi sem Sovétríkin voru, og alltaf eitthvað af erlendum farmönnum í höfn.  

Einnig fengu nokkrir bílablaðamannanna strax við komuna til Murmansk há tilboð í Volvo-bílana sem við vorum á, og var þeim sagt að væntanlegir kaupendur hefðu góð sambönd og bæði væri það hættulaust og gróðavænlegt fyrir seljendur bílanna að láta þá flakka fyrir góðan pening.

Einn hinna yngstu í hópnum greindi okkur frá viðskiptum sínum við vændiskonu og hafði hann það eftir henni að hún væri á mála hjá KGB, en á meðan ferð okkar stóð vorum við kyrfilega vöktuð af KGB mönnum sem voru aldrei fjarri á Lödunum sínum.


mbl.is Samkynhneigð var ekki til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband