29.8.2012 | 16:24
Eins gott að þeir frétta ekki af minni leit.
Ég sagði frá því hér á blogginu í fyrradag þegar ég var fyrir nokkrum árum kominn í kapphlaup í hörkuleit sem björgarsveitarmaður og fréttamaður að flugvél sést hafði hrapa og hverfa inn af Kárahnjúkum.
Flugmálastjórn og björgunarsveitir voru komnar í málið og stóðu fyrir leit og björgun sem björgunarsveitarmenn og lögregla tóku þátt í og ég var nú orðinn þátttakandi í í kapphlaupi um það að finna hina hröpuðu flugvél.
Miðað við það flugvélin hafði sést hrapa niður í gljúfur og ekki fundist í á annan klukkutíma var ég að sjálfsögðu viðbúinn hinu versta ef ég fyndi flugvélarflakið og lemstraðan ef ekki dauðan flugmanninn inni í því.
Síðan kom í ljós að hin týnda og hrapaða flugvél hafði verið TF-FRÚ og flugmaðurinn hrapaði, líklegast dauður, var ég sjálfur.
Nánari málsatvik eru rakin í bloggpistlinum og birt vísan sem ég gerði þegar leitinni var hætt:
Á ofsahraða um illan veg
ók ég, fréttaþyrstur.
Í eigið flugslys æddi ég
og ætlaði að verða fyrstur.
Kristján Hreinsson hefur gert vísum um leit erlendu konunnar að sjálfri sér og birti ég hana hér með leyfi höfundar:
Merkileg vor ævi er,
elskulegu vinir.
Margir leita að sjálfum sér
en sumir meira en hinir.
Eins gott er að leit mín að eigin flugvélarflaki og hugsanlelga líki berist ekki út í heim. Þá held ég að aðrar þjóðir myndu verða gáttaðar á því sem gerst getur hér á klakanum.
Sjálfsleitin vekur heimsathygli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Snyrt og þvegið fagur fljóð
ferðast um í sveitinni.
Orkurík og afar góð
og öflugust í leitinni
kv
Magnús frá Sveinsstöðum
Magnús Ólafsson (IP-tala skráð) 29.8.2012 kl. 17:07
Ég er alls ekki að djóka.
Þú skalt ekki fara í jóka
þó ekki þekkir sjálfan þig.
Upp um öll fjöll og fyrnidi
Skalt ferðast um á Íslandi,
þar kemstu á hærra þroska-stig.
Og það er létt á Íslandi
og eiginlega gargandi
snildin, - að finna sjálfan sig.
JJ (IP-tala skráð) 30.8.2012 kl. 19:36
Mér finnst eins og það vanti einhver orð í þennan texta þar sem hann er lítið meira en skiljanlegur og talsvert ruglandi, eða þá að ég sé svona tregur.
Kv. Dagur
Dagur (IP-tala skráð) 30.8.2012 kl. 20:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.