7.11.2012 | 00:31
Svar Helga Tómassonar.
Ég hef alltaf haldið upp á það sem mér var sagt á sínum tíma að Helgi Tómasson hefði sagt þegar hann svaraði erfiðri spurningu blaðamanns. Þetta svar kemur upp í hugann þegar fréttist af því að Bryndís Ragna Brynjólfsdóttir hefði verið valin í hóp 100 bestu dansara í heimi 2011-2012.
Samkvæmt því sem mér var sagt, spurði blaðamaðurinn Helga hvern hann teldi besta ballettdansara heims, hvort það væri Nurejev.
Þá á Helgi að hafa svarað af sinni hægu hógværð: "Það er ekki hægt að svara þessari spurningu. Við erum fjórir."
Í hópi 100 bestu dansara heims | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.