Svar Helga Tómassonar.

Ég hef alltaf haldið upp á það sem mér var sagt á sínum tíma að Helgi Tómasson hefði sagt þegar hann svaraði erfiðri spurningu blaðamanns. Þetta svar kemur upp í hugann þegar fréttist af því að Bryndís Ragna Brynjólfsdóttir hefði verið valin í hóp 100 bestu dansara í heimi 2011-2012.

Samkvæmt því sem mér var sagt, spurði blaðamaðurinn Helga hvern hann teldi besta ballettdansara heims, hvort það væri Nurejev.

Þá á Helgi að hafa svarað af sinni hægu hógværð: "Það er ekki hægt að svara þessari spurningu. Við erum fjórir."


mbl.is Í hópi 100 bestu dansara heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband