19.12.2012 | 20:43
"Ísmeygilegt" "undirliggjandi" bragð til að auka fólksfjölgun?
Mönnum hefur sýnst erfitt að finna ástæðuna fyrir því að setja á álögur á smokka og dömubindi.
En ég er með kenningu um hugsanlega "undirliggjandi" ástæðu í tvennum skilningi.
Hún er sú, að viðbrögð við þessari verðhækkun hefði í einstökum tilfellum orðið sú að spara sér að kaupa þessar vörur í níu mánuði með því að byrja fyrst á því að kaupa kaupa ekki smokka og láta síðan afleiðingarnar koma beint fram með því að ekki þyrfti að kaupa dömubindi í níu mánuði á eftir eftir að smokka bindindið hófst sem gæti líka staðið í þessa mánuði.
Ef þetta gæti verið ástæðan er þetta einhver "ísmeygilegasta" aðgerð í tvennum skilningi sem um getur.
Og miðað við ýmsa hugkvæmni í álagningu gjalda í gegnum ár og áratugi hreint ekkert ósennilegri en margt annað.
Gagnrýndu eftirlitsgjald á smokka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ómar!!!
Það er ekki að spyrja að þér, hittir alltaf naglann á höfuðið. LOL.
jóhanna (IP-tala skráð) 20.12.2012 kl. 06:35
Hehe, en pillan gleymist ásamt túrtappanum
Jón Logi (IP-tala skráð) 20.12.2012 kl. 17:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.