Þegar blómlegt þéttbýli, iðandi af lífi, rís ?

Helsta merki framfara í þjóðlífi síðustu aldar mátti sjá í því að upp risu blómleg þéttbýli, iðandi af lífi um allt land . Það voru ýmist hverfi í Reykjavík og stærstu bæjunum eða heil þorp og bæir.

Í þessum blómlegu þéttbýlisbyggðum var fjölbreytt og áberandi gróandi þjóðlíf frá morgni til kvölds, því að þar bjó fólk af öllum stigum á öllum aldri og innan um var atvinnustarfsemi sem heilmikið líf var í kringum.

Ég ólst til dæmis upp á Rauðárárholti í Reykjavík sem var í raun 1000 manna afmarkað þorp rétt utan við þáverandi jaðar borgarinnar. Í hluta hverfisins reis fyrsta iðnaðarsvæði landsins utan hafnarsvæðanna með 15 blómlegum fyrirtækjum, í því voru smáverslanir og tveir skólar og fjölsótt leiksvæði barna.

Þar komu knattspyrnuvöllur og félagsheimili eins af íþróttafélögum borgarinnar, tvær kirkjur, stór mjólkurstöð og viðbótar iðnaðarhús við norðausturjaðar þess. Að hverfinu lá lítil bújörð með búsmala og í upphafi var líka búskapur á smábýli í jaðri túns bjújarðarinnar.

Hverfið iðaði af lífi á svipaðan hátt og álíka stórar byggðir víða um land, sem lágu við samgöngumannriki á borð við hafnir, krossgötur og brýr. Þar var ekki aðeins iðandi líf barna, unglinga og fullorðins fólks, heldur líka blómlegt atvinnulíf í iðnaðarhluta hverfisins.

Þéttbýlið, sem nú er að fá á sig endanlega mynd í Skuggahverfinu í Reykjavík, er að sönnu glæsilegt og hátimbrað, afar vinsælt að sögn, enda er dýrasta húsnæðið þar virt á eina milljón króna fermetrinn!

Íbúðirnar í hverfinu kosta upp í 300 milljónir króna hver þannig að samanlagt má verðleggja tvo nýjustu íbúðaturnana á marga milljarða króna og turnahverfið í heild á tugi milljarða.

Venjuleg íbúðabyggð, sem kostaði álíka upphæð, myndi soga að sér líf og fjör og iðandi mannlíf með leikskóla og gunnskóla og fyrirtækjum með verslun, þjónustu og iðnaði.

En ekki þarf nema eina heimsókn í þetta nýja langdýrasta hverfi landsins til að sjá, að það er steindautt. Það þarf engan leikskóla eða leiksvæði því að barnafólkið vantar.

Enda ekki nema von. Hvaða venjuleg íslensk fjölskylda getur keypt og búið í 300 milljón króna íbúð, þar sem svefnherbergið kostar tugi milljónir króna?

Sagt er að tugum milljóna króna muni á verði íbúðanna á efstu hæðunum og þeirra, sem neðar liggja.

Útsýnið eitt úr hverri íbúð er virt á tugi milljóna. Á sama tíma er útsýni á hálendi Íslands virt á núll krónur ef það er stóriðja, sem fórna á landinu fyrir.

Nú er búið að brjóta í spað og ryðja burtu iðnaðarhverfinu sem skapaði sína tegund af iiðandi athafnalífi í íbúðabyggðinni, sem ég ólst upp í. Þegar ég var ungur unnu sumir af íbúum hverfisins í þessum fyrirtækjum á afar þjóðhagsvænan hátt og fóru gangandi í vinnuna, þurftu ekki einu sinni að hjóla.

Eftir að búið er að senda iðnaðinn og þjónustuna í burtu, hugsanlega til Hafnarfjarðar, Kópavogs eða Garðabæjar, þyrfti fólk, sem á heima í þessu hverfi hugsanlega að fara alla leið þangað til vinnu.

Samt er sagt að það sé svo þjóðhagslega hagkvæmt að þétta byggðina og ryðja burtu samgöngumannvirkjum og atvinnustarfsemi til að rýma fyrir íbúðabyggð hvar sem því verði við komið.

Hefur þetta dæmi verið reiknað til enda?  Hvað er orðið um hugtakið "blönduð byggð"?

Glæsihverfið steindauða, "vaxtarbroddur þjóðlífsins", sem nú er að fá á sig endanlega mynd í Skuggahverfinu, er tákn um okkar tíma, þegar tugþúsundir fólks er í húsnæðisvandræðum og dyr gjaldþrots á sama tíma og "miðborgin hefur sjaldan notið meiri vinsælda" eins og það er orðað í fréttum, með allt að 300 milljóna króna íbúðir sem rifist er um að kaupa "í kreppunni eftir Hrunið".

 

 

 

 


mbl.is Dýrustu íbúðirnar á 300 millj. kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar er byggðin mun þéttari en austan Elliðaáa en þar eru samt stór opin svæði, Klambratún (Miklatún), Öskjuhlíð, Nauthólsvík, Ægisíða og Hljómskálagarðurinn.

Þar eru einnig einkagarðar við langflest íbúðarhús og í mörgum tilfellum bæði framgarðar og bakgarðar.

Alls áttu 40.295 lögheimili í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar 1. janúar 2013, rúmlega þriðjungur Reykvíkinga, þar af 15.708 í 101 Reykjavík, 16.067 í 105 Reykjavík og 8.520 í 107 Reykjavík.

Og þá áttu þar lögheimili 7.915 börn (sautján ára og yngri eru skilgreindir sem börn), þar af 2.659 í 101 Reykjavík, 3.203 í 105 Reykjavík og 2.053 í 107 Reykjavík, samkvæmt Hagstofu Íslands.

Þar að auki starfa flestir Reykvíkingar vestan Kringlumýrarbrautar.

Þorsteinn Briem, 22.2.2014 kl. 11:20

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

12.2.2013:

"Gatnakerfið í Reykjavík austan Elliðaáa þekur 51% af landinu.

Byggð svæði þekja einungis 35% og opin svæði 14%."

Ofvaxið gatnakerfi - Þétting byggðar

Þorsteinn Briem, 22.2.2014 kl. 11:22

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Rétt skal vera rétt, Steini. Ef það er rétt hjá Gísla Marteini að helmingur Reykvíkinga starfi vestan Kringlumýrarbrautar eru það ekki "flestir Reykvíkingar".

Síðan er alltaf talað eins og Reykjavík sé ein og sér í stað þess að taka allt höfuðborgarsvæðið sem heild.

Ég bý í Reykjavík, en samt eru 6 kílómetrar frá mínu heimili til þyngdarpunkts íbúðabyggðar höfuðborgarsvæðisins en einn kílómetri frá heimili systur minnar í Kópavogi.

Ómar Ragnarsson, 22.2.2014 kl. 11:30

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Helmingur Reykvíkinga starfar ekki í Reykjavík austan Kringlumýrarbrautar.

Og þungamiðja alls höfuðborgarsvæðisins er vestan Kringlumýrarbrautar í Reykjavík.

Í 101 Reykjavík eru níu leikskólar og einn þeirra, Lindarborg, er á Lindargötu 26.

Og stúdentagarðar, Skuggagarðar, eru á Lindargötu 42-46.

Þorsteinn Briem, 22.2.2014 kl. 11:44

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Vestan Kringlumýrarbrautar er meðal annars þessi starfsemi í Reykjavík:

Útgerð, fiskvinnsla og tengd starfsemi:

Reykjavíkurhöfn, þar sem meðal annars eru hvalaskoðunarfyrirtæki, og hvergi annars staðar er landað meira af botnfiski hér á Íslandi og jafnvel í öllum heiminum, fiskvinnsla og útgerð Granda hf., Fiskkaup hf. og fleiri útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki, Lýsi hf., Icelandic Group, Hafrannsóknastofnun og Slippurinn.

Háskólar:


Háskólinn í Reykjavík, svo og flestar deildir Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands.

Framhaldsskólar:


Menntaskólinn í Reykjavík, Kvennaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Hamrahlíð og Tækniskólinn.

Dómstólar:


Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur.

Verslanir:


Um tvö hundruð verslanir við Laugaveg einan, þar sem um eitt þúsund manns starfa, um tvöfalt fleiri en í Kringlunni, svo og fjöldinn allur af öðrum verslunum, til að mynda við Hverfisgötu, Skólavörðustíg, Lækjargötu og Austurstræti.

Um eitt hundrað matsölustaðir, krár og kaffihús.

Og fjölmargir skemmtistaðir.

Heilbrigðismál:


Landspítalinn, Landlæknir, Íslensk erfðagreining, Heilsugæslan Miðbæ, Rauði krossinn í Reykjavík, Krabbameinsfélagið, Blóðbankinn, Sjálfsbjörg, læknastofur, augnlæknastofur, tannlæknastofur, Sjúkraþjálfun Reykjavíkur, sjúkranudd, fótaaðgerðarstofur, Nálastungur Íslands og Vinnuvernd ehf.

Hjúkrunarheimili:


Grund, Droplaugarstaðir og Sóltún.

Samgöngu- og ferðamál:


Reykjavíkurflugvöllur, Vegagerðin, Ferðamálastofa, Arctic Adventures, bílaleigur, leigubílastöðvarnar BSR og City Taxi, Samgöngustofa, Umferðarmiðstöðin, bifreiðaumboðið Hekla, skrifstofur Icelandair og Wow Air.

Dohop, ferðaskrifstofur, Upplýsingamiðstöð ferðamanna, Upplýsingamiðstöð Íslensks ferðamarkaðar, söluskrifstofa hópferðabifreiða við Lækjartorg, bifreiðaverkstæði, hjólbarðaverkstæði, smurstöðvar, réttingaverkstæði og mannaðar bensínstöðvar.

Fjármál:


Seðlabankinn, höfuðstöðvar Landsbankans og Arionbanka, svo og útibú þeirra og Íslandsbanka í Lækjargötu, Hótel Sögu, Borgartúni 33 og við Hagatorg, útibú MP banka í Borgartúni 26, Auður Capital, Íbúðalánasjóður, Lánasjóður íslenskra námsmanna, Kauphöllin og peningasendingafyrirtækið Western Union.

Reykjavíkurborg:

Ráðhúsið, Perlan, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, háhýsin við Höfðatorg, þar sem skrifstofur Reykjavíkurborgar eru meðal annars til húsa og verið er að reisa sextán hæða hótel.

Íslensk og erlend stjórnsýsla:


Alþingi, Umboðsmaður Alþingis, forsætisráðuneytið, innanríkisráðuneytið, fjármálaráðuneytið, sjávarútvegsráðuneytið. landbúnaðarráðuneytið, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, menntamálaráðneytið, félagsmálaráðuneytið, utanríkisráðuneytið, umhverfisráðneytið og heilbrigðisráðuneytið, svo og skrifstofa forseta Íslands,

Útlendingastofnun, sendiráð Rússlands, Japans, Bandaríkjanna, Kanada, Kína, Indlands, Bretlands, Þýskalands, Frakklands, Póllands, Danmerkur, Noregs og Finnlands, svo og Færeyska ræðismannsskrifstofan.

Tollstjórinn, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Landhelgisgæslan, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Ríkislögreglustjóri, fangelsið við Skólavörðustíg, Ríkissáttasemjari, Ríkisskattstjóri, Ríkisendurskoðun, Ríkiskaup, Skattrannsóknastjóri, Ríkissaksóknari, Sérstakur saksóknari, Samkeppniseftirlitið, Sýslumaðurinn í Reykjavík, Hagstofa Íslands. Þjóðskrá Íslands, Minjastofnun Íslands og Fornleifastofnun Íslands.

Menning:


Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa, Þjóðmenningarhúsið, Þjóðarbókhlaðan, Borgarbókasafnið, Þjóðminjasafnið, Sjóminjasafnið Víkin, Norræna húsið, Kjarvalsstaðir, Listasafn ASÍ, Þjóðleikhúsið, leikfélagið Hugleikur, Vesturport, Stúdentaleikhúsið, Austurbær, sviðsbúnaðarfyrirtækið Exton og Reykjavíkurakademían.

Nýlistasafnið, Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Íslands, Landnámssýningin, Volcano House, Volcano Show, listagallerí, Höfði, Háskólabíó, Regnboginn, Kvikmyndamiðstöð Íslands, Undraland kvikmyndir, Evrópa kvikmyndir og Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).

Ýmis þjónusta og tæknifyrirtæki:


Internetfyrirtækið CCP, Internetþjónustan Hringiðan, Advania, Netheimur, Talnakönnun, Tryggingastofnun ríkisins, Veðurstofa Íslands, Björgunarmiðstöðin, afgreiðsla Íslandspósts, bókaútgáfur, Menntastofnun Íslands og Bandaríkjanna (Fulbright stofnunin), Alliance Française, Evrópustofa, Íslandsdeild Amnesty International, skrifstofur Hótels Eddu, Fosshótela, Landverndar, svo og tölvufyrirtækið Nýherji.

Auglýsingastofur, arkitektastofur, verkfræðistofur, lyfjabúðir, ljósmyndastofur, bakarí, Veisluþjónustan Fagnaður, fasteignafélögin Eik og Landfestar, byggingafyrirtæki, húsaviðgerðir, húsgagnabólstrun, fatahönnun, listmunagerð, fasteignasölur, leigumiðlun, lögfræðistofur, endurskoðunarstofurnar PricewaterhouseCoopers, Ernst & Young og KPMG.

Willard Fiske Center, Fréttablaðið, 365 miðlar, dagblaðið DV, Kjarninn miðlar, Útgáfa og hönnun, Reykjavíkurakademían, International Modern Media Institute, Valhöll, skrifstofur Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Framsóknarflokksins, og Vinstri grænna.

Kjarnar ehf., Dýralæknastofa Dagfinns, fatahreinsanir, þvottahús, hársnyrtistofur, hárgreiðslustofur, saumastofurnar Klæðskerahöllin og Saumsprettan, raftækjaviðgerðir, Snyrtistofan Gyðjan, skósmiðir, endurvinnslustöð Sorpu við Ánanaust og ræstingafyrirtæki.

Hótel:


Reykjavík Natura (Hótel Loftleiðir), Hótel Saga, Hótel Holt, Hótel Þingholt, Hótel Plaza, Hótel Arnarhvoll, Hótel Klöpp, Hótel Skjaldbreið, 101 Hótel, Hótel Borg, Hótel 1919 í gamla Eimskipafélagshúsinu, Hotel Marina, Kex Hostel, Black Pearl Apartment Hotel, Hótel Leifur Eiríksson og Hlemmur Square.

Hótel Klettur, 4th Floor Hotel, Best Western Hotel, Blue Arctic Hotel, Bus Hostel, City Center Hotel, Fosshótel Barón, Fosshótel Lind, Hótel AdaM. Hótel Flóki, Hótel Frón, Hótel Garður, Hótel Hilda, Hótel Óðinsvé, Hotel Reykjavík Centrum, Hotel Cabin, Metropolitan Hotel, Hótel Örkin og Hotel Adam.

Gistiheimili:


Þrjár systur, Kastalinn Lúxusíbúðir, Gistiheimilið Bröttugötu, Gistiheimili Snorra, Dalfoss, Konrads Guesthouse, Gista íbúðir, Barónsstígur Central, Farfuglaheimilið Vesturgötu, Hostel B47, Art Centrum, Bus Hostel, farfuglaheimilið Loft og Alba Guesthouse.

Gistiheimili Hjálpræðishersins, Gistiheimilið Forsæla, Sunna gistihús, Áróra gistihús, Gistihúsið Andrea, Bella gistihús, Gistihúsið Luna, gistihúsið Víkingur, Anna gistihús, The Capital Inn, Gistihúsið Egilsborg og Thor Guesthouse.

Stéttarfélög og lífeyrissjóðir:


ASÍ, BSRB, Samtök atvinnulífsins, Efling, Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ), Sjómannasamband Íslands, Leiklistarsamband Íslands, Landssamtök lífeyrissjóða. lífeyrissjóðurinn Gildi, Almenni lífeyrissjóðurinn, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóður verkfræðinga og Lífeyrissjóður bænda.

Vista séreignasjóður, Íslenski lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóður bankamanna, Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar, Lífeyrissjóður tannlækna og Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga.

Guðshús:


Biskupsstofa, Hallgrímskirkja, Dómkirkjan í Reykjavík, Neskirkja, Landakotskirkja, Fríkirkjan í Reykjavík, Fossvogskirkja, Háteigskirkja, Fíladelfía, Kirkja sjöunda dags aðventista, Kirkja rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, Kirkja óháða safnaðarins, safnaðarheimili við kirkjur og Menningarsetur múslíma.

Íþrótta- og félagsstarfsemi:


Knattspyrnufélag Reykjavíkur (KR), Valsheimilið og þeirra íþróttavellir, þrekþjálfunarstöðvar, félagsmiðstöðvar og frístundamiðstöðvar við grunnskóla.

Sundlaugar:


Vesturbæjarlaug og Sundhöll Reykjavíkur.

Tónlistar- og söngskólar:

Söngskólinn í Reykjavík, Söngskólinn Domus Vox, Suzukitónlistarskólinn, Tónmenntaskóli Reykjavíkur, Tónskólinn Do Re Mi, Tónlistarskólinn í Reykjavík og Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar.

Dans- og ballettskólar:


Kramhúsið, Ballettskóli Eddu Scheving, Danssmiðjan og Dansskóli Jóns Péturs og Köru.

Myndlistaskólar:


Myndlistaskólinn í Reykjavík.

Happdrætti:


Spilasalir Háspennu, happdrætti Háskóla Íslands, DAS og Krabbameinsfélagsins.

Þorsteinn Briem, 22.2.2014 kl. 12:09

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þessi listi hér að ofan er sífellt að lengjast, ný og stór hótel verða við Höfðatorg og Hörpu, í Landssímahúsinu við Austurvöll, í húsi Reykjavíkurapóteks við Austurstræti, á Hljómalindarreitnum milli Hverfisgötu og Laugavegar, 100 herbergja hótel á Hverfisgötu 103, þar sem myndasöguverslunin Nexus var til húsa, og stækka á Hótel Marina við Slippinn um allt að 90 herbergi.

Og verið er að reisa hátæknisetur lyfjafyrirtækisins Alvogen skammt frá húsi Íslenskrar erfðagreiningar, þar sem um 200 manns munu starfa.

Hátt í eitt hundrað hótel og gistiheimili eru nú þegar vestan Kringlumýrarbrautar í Reykjavík.

CCP
á Grandagarði í Reykjavík seldi árið 2010 áskrift að Netleiknum EVE Online fyrir um 15 evrur á mánuði og þá voru erlendir áskrifendur um 300 þúsund.

Gjaldeyristekjur CCP af EVE Online voru samkvæmt því um níu milljarðar króna árið 2010 en erlendir áskrifendur að EVE Online voru um 70% fleiri, eða rúmlega hálf milljón, fyrir ári.

Og gjaldeyristekjur vegna Iceland Airwaves og CCP Fanfest eru nú þegar samanlagt um einn og hálfur milljarður króna í nokkra daga á ári, eða 30 milljarðar króna á 20 árum, en allur byggingarkostnaður vegna Hörpu frá upphafi er 28 milljarðar króna, að meðtöldum fjármagnskostnaði vegna lána til 35 ára.

15.10.2010:


Um 300 manns starfa í höfuðstöðvum CCP í 101 Reykjavík


Hjá Norðuráli á Grundartanga starfa hins vegar um 500 manns og þar af eru um 400 félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness.

Í 101 Reykjavík
eru einnig til að mynda hið gríðarstóra útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki Grandi, fleiri fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtæki og Lýsi hf.

Þar að auki fara erlendir ferðamenn í hvalaskoðunarferðir frá Gömlu höfninni í Reykjavík, sem skapa nú þegar um eins milljarðs króna gjaldeyristekjur á ári.

Þar er einnig langmestum botnfiskafla landað hérlendis og jafnvel í öllum heiminum, um 87 þúsund tonnum árið 2008, um tvisvar sinnum meira en í Grindavík og Vestmannaeyjum, fimm sinnum meira en á Akureyri og fjórum sinnum meira en í Hafnarfirði.

Í engu öðru póstnúmeri á landinu er
því aflað meiri gjaldeyristekna en 101 Reykjavík.

Þorsteinn Briem, 22.2.2014 kl. 12:36

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Milljónamæringarnir Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur á Vatnsstíg 21 og Þorvaldur Gylfason prófessor á Lindargötu 33 eru kannski í leikskólanum Lindarborg á Lindargötu 26.

Hinir skuggalegu stúdentagarðar Skuggagarðar eru á Lindargötu 42-46.

Og þar býr Skugga-Baldur Freyr Ólafsson á Lindargötu 44.

Þorsteinn Briem, 22.2.2014 kl. 16:37

8 identicon

AFLAÐ? Ég kalla þetta SKRÁÐ.
Án alls annars en 101 væri aflinn rýr.

Jón Logi (IP-tala skráð) 22.2.2014 kl. 17:00

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fiskiskip Granda hf. og önnur reykvísk fiskiskip, fiskvinnslan og Lýsi hf. við Reykjavíkurhöfn, CCP á Grandagarði, Harpa, hótelin í Reykjavík, hvalaskoðunarferðir frá Reykjavíkurhöfn og Íslensk erfðagreining afla erlends gjaldeyris.

Það sem flutt er inn í 101 Reykjavík frá landsbyggðinni eru fokdýrar landbúnaðarvörur.

Og skattgreiðendur, sem flestir búa á höfuðborgarsvæðinu, halda uppi mörlenskum bændum.

Þar að auki eiga skattgreiðendur á höfuðborgarsvæðinu meirihlutann af öllum fiskimiðum við landið, íslenskum þjóðlendum og Landsvirkjun.

Þorsteinn Briem, 22.2.2014 kl. 17:46

10 identicon

Skattgreiðendur greiða niður matinn ofan í sjálfa sig, og það er keyrt í gegn um bændakerfið. Áður var það gert beint, og hét þá niðurgreiðsla til neytenda. En sumir eru of tregir til að skilja þetta.

Jón Logi (IP-tala skráð) 23.2.2014 kl. 09:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband