12.6.2014 | 16:56
Kaldrifjuð stórveldapólitík samtryggingar.
Það er hagur allra helstu iðnríkja heims og stórvelda að tryggt sé nægt og öruggt framboð á olíu á síðustu áratugum olíualdarinnar.
Myndast hefur ákveðin verkaskipting sem er líklega mest þeim stórveldum í hag, sem nýkomin eru í klúbbinn, Kína og Indlandi.
Komin er hefð á að Bandaríkjaher sé beitt ef vafi leikur á um að olíuvinnsla og framboð í einhverju olíuframleiðsluríkjanna sé trygg. Út úr því hlutverki komast Kanarnir ekki þvi að þeir geta enga áhættu tekið.
Í þessu felst ákveðin verkaskipting stórveldanna, því á meðan þetta ástand ríkir geta Kínverjar, sem eiga allt sitt undir því að fá olíuvörur á öruggan og hagkvæman hátt, sparað fé og fyrirhöfn við að tryggja þessa hagsmuni. Í staðinn geta þeir staðið glottandi hjá og látið bandarískan almenning blæða peningum í öflugasta her veraldar.
Innrásin misheppnaðist algjörlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.