Mynd sem segir sögu.

Nýlega áskotnaðist mér ljósmynd af sjónvarpsstarfsmönnum á fréttastofu RUV fyrir um átta árum, áður en ég fór á eftirlaun.

27 manns eru á myndinni en af þeim er drjúgur meirihluti horfinn úr vinnu á þessum fáu árum, flestir vegna uppsagna við síendurtekinn niðurskurð sem ekkert lát virðist ætla að verða á.

Með þeim, sem hættu, hvarf gríðarleg reynsla frá Ríkisútvarpinu, en reynsla og þekking á hinu liðna er afar mikilvæg fyrir hverja fréttastofu. Nú njóta önnur fyrirtæki og stofnanir hæfileika þessa fólks.  

Hvað eftir annað koma upp fréttir, þar sem verður að meta gildi hennar á svipstundu og átta sig á því hvort viðkomandi frétt eigi sér fordæmi.

Um margt af slíku gefst enginn tími til né eru tök á að gúgla neitt. Uppsagnirnar hafa verið mikil blóðtaka á tímum, þar sem aukin þörf hefur verið á öflugri fjölmiðlun vegna margs konar þjóðfélagsvanda og gerjunar á ýmsum sviðum. 

Svo er að sjá sem ráðamenn geri sér ekki grein fyrir eðli fjárhagsvanda RUV né heldur nauðsynlegu hlutverki ríkisútvarps. Fjárhagsvandinnn á sér rætur í allt of stóru og dýru útvarpshúsi sem eru glöp fyrri tíma, þeim ókosti ohf væðingarinnar að lífeyrisgreiðslur RUV séu bókaðar beint á fyrirtækið, ásamt því að árum saman hafa ráðamenn þjóðarinnar tekið stóran hluta af útvarpsgjaldinu frá RUV og eytt því í eitthvað annað.

Þetta er í raun lymskuleg aðferð til að kippa grundvellinum undan RUV. Þótt útvarpsgjaldið sé síst hærra hér en í nágrannalöndunum er alið á óánægju greiðendanna, sem ekki vita að ríkissjóður rænir stórum hluta gjaldsins ár eftir ár.

Flest fólk heldur að allt féð hafi farið til RUV.

 Ef útvarpsgjaldið hefði fengið að vera í friði væri staðan önnur.

Þótt nú sé því flaggað að komið sé með 400 milljónir í púkkið er hin raunverulega staða sú, að útvarpsgjaldið á að lækka svo mikið nú og á næstu árum að engin leið verði til þess að reksturinn standi undir sér.

Nú er í alvöru íhugað að leggja eitthvað af starfsemi RUV niður. Hæst bylur söngurinn um að selja Rás 2 þótt einmitt hún sé það sem ber sig einna best. Engin furða er þótt þessi söngur sé háværastur því að auðvitað ásælast einkaaðilar helst þann hluta rekstursins sem gefur arð.

Áhrifamenn sækja hart að fréttastofunni og í gangi er samfelldur áralangur óhróðurssöngur um hana.

Þeir myndu fagna því ef hún yrði lögð niður og fréttaflutningur og fréttaskýringar í landinu yrðu í höndum einkaaðila, sem þeim eru þóknanlegir. Eða þá að fréttastofan yrði halaklippt svo að hún gæti ekki sinnt hlutverki sínu og þá væri hægt að benda á hana og segja: Þarna sjáið þið, að hún veldur ekki hlutverki sínu og best að leggja hana bara niður. 

Mergurinn málsins er sá að fréttastofur í höndum einkaaðila þurfa ekki að standa neinum reikningsskil gjörða sinna nema eigendunum sínum í stað þess að ríkisútvarp þarf að sinna skyldum sínum við,eigendur sína sem eru þjóðin.

Þjóðirnar í kringum okkur láta sér ekki til hugar koma að leggja niður ríkisútvarp í sínum löndum og láta peningamönnum það eftir að eiga alla fjölmiðla.

Þvert á móti er ríkisútvarp eflt í þessum löndum vegna nauðsynjar á öflugri fjölmiðlun.

Og í dag er birt niðurstaða skoðanakönnunar sem sýnir að fréttastofa RUV nýtur langmests trausts allra fjölmiðla. 

Ég efast um að margir í þessum löndum geti setið þar fyrir framan ljósmyndir af starfsmönnum á fréttastofum og séð það, sem ljósmyndin á veggnum mínum sýnir.

  

 


mbl.is Selji eignir eða rifi seglin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í Séð og heyrt loks fær hún frægð,

fann í andans - skemmu,

lítillækkuð og niðurlægð,

litla bréfaklemmu!

 Þjóðólfur

http://www.dv.is/folk/2014/11/30/nidurlaegd-med-brefaklemmu/

Þjóðólfur bóndi og meðhjálpari (IP-tala skráð) 1.12.2014 kl. 14:45

2 identicon

Mér finnst að þá höggvi sá sem hlífa skyldi þegar ævaforn útvarpsmaður kallar stofnunina ekki sínu rétta nafni; Ríkisútvarpið.

Það er eitthvað svo fáfengilegt að lesa í skammstafanir.  Hí, Eí, etc.

Efni pistilsins er hins vegar grafalvarlegt og orð í tíma töluð.

Þorvaldur S (IP-tala skráð) 1.12.2014 kl. 18:06

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég nefni Ríkisútvarpið yfirleitt sínu rétta og virðulega nafni, en þegar nafnið er oft nefnt kann að vera þægilegt að hafa tilbreytingu inn á milli. 

Norðmenn kalla Norsk Riks Kringkastning "ennerrko", þ.e. NRK, og Danir kalla Danmarks Radio "de-err", þ.e. DR. 

Ómar Ragnarsson, 1.12.2014 kl. 20:42

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fylgi flokka á landsvísu - Capacent Gallup 1.12.2014 (í gær):

Samfylking 20%,

Björt framtíð 13,5%,

Vinstri grænir 14,5%,

Píratar 8%.

Samtals 56%
og þessir flokkar mynda nú meirihluta borgarstjórnar.

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur 38% og þar af Framsóknarflokkur 11%.

Og næsta víst, eins og Bjarni Fel. myndi segja, að ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins kolfellur í næstu alþingiskosningum.

Þorsteinn Briem, 2.12.2014 kl. 08:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband