18.1.2016 | 04:15
"Allir myndu elska mig..."
Í fyrsta skiptið sem sami flytjandi átti tvö efstu lögin á bandaríska listanum, - Frankie Laine 1949, - var flytjandinn sprelllifandi.
Lögin voru That Lucky old sun og Mule train.
Engu er líkara en að David Bowie hafi þekkt stöku Andrésar Valbergs og haft hana í huga þegar hann framdi sinn síðasta gerning og komst með því í hóp þeirra sem hafa átt tvö lög samtímis á topp fimm.
Þessa sígildu stöku flutti Andrés ekki löngu fyrir andlát sitt og hún kemur enn einu sinni upp í hugann:
Veröldin er söm við sig.
Svíkur margan auður.
Allir myndu elska mig
ef ég væri dauður.
Svanasöngur Bowie beint á toppinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hér kemur linkur hér fyrir neðan á lög með Elvis sem heita Black Star og Flaming Star
Presley og Bowie áttu sama afmælisdag sem er 8.janúar.
https://www.youtube.com/watch?v=x0jaR6b-ms
Baldvin Nielsen
B.N. (IP-tala skráð) 19.1.2016 kl. 06:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.