16.2.2016 | 01:35
39 m/sek á Sauðanesvita, 37 við Sauðárflugvöll.
Mestu hviður sem hafa sést á veðurstöðvum landsins í kvöld eru 39 m/sek á Sauðanesvita vestan við Siglufjörð og á veðurstöð á Brúaröræfum, sem 3km frá Sauðárflugvelli.
Þetta eru snörpustu hviðurnar þar í vetur, en lítil hætta á skemmdum, því að snjór er orðinn það mikill á þessum árstíma, að hann heldur yfirleitt öllu niðri, eins og meðfylgjandi mynd sýnir, en hún er reyndar tekin í apríl 2013 af flughlaðinu á miðjum velli, og er rauði bletturinn "flugstöðin", Ford Econoline húsbíll árgerð 1978.
Báðir þessir vindhraðar eru yfir mörkum fárviðris.
Hviður geta farið upp í 50 metra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Lending.is:
Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 05:14
Í hvaða samhengi er þessi mynd, Hr. St.Breim ?...eða ertu að "snappa" núna eina ferðina enn ?
Már Elíson, 16.2.2016 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.