31.5.2016 | 07:52
Mosfellsheiði er ekki undir Hafnarfjalli.
Með frétt af lokun Þingvallavegar af því að vélhjólamaður missti stjórn á hjóli sínu og lenti utan vegar er birt mynd frá hringveginum í Melasveit þar sem Hafnarfjall sést hægra megin en hluti Snæfellsnesfjallgarðarins í baksýn.
Sjá má tvo bíla sem lent hafa í árekstri en hvergi nein merki um lokun hringvegarins.
Engin skýring er gefin á því af hverju þessi mynd er birt í frétt um allt annan atburð á allt öðrum þjóðvegi uppi á heiði í meira en 60 kílómetra fjarlægð.
Nokkrum grundvallarspurningum þarf að svara í fréttaflutningi svo sem: Hvar? Hvenær? Hvernig? Hvers vegna?
Svörin þurfa að vera rétt og birtar viðeigandi myndir.
Þingvallavegur lokaður eftir mótorhjólaslys | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.