Þegar byrjað að tala um "untermenschen".

Nú halda innreið sína ýmsar umhugsunarverðar kenningar hér á landi og eru nýnasistar ekki einir um það að flytja boðskap, sem miðar við það að skipta þjóðum heims í tvo aðskilda hópa, annars vegar "untermenschen", "óþjóðir", "óþjóðalýð", "ómenningarfólk" og hins vegar auðvitað "ubermenschen" eða ofurmennin sem við og nágrannaþjóðir okkar í Evrópu verða teljast vera svo að skiptingin sé skýr. 

Hege Storhaug er nefnd sem snillings boðari þessara fræða og fara einmitt núna fram fjörugar umræður um hann í bloggheimum, þar sem mikilli hrifningu er lýst yfir skrifum hans.

Yfirskrift eins bloggpistilsins er einmitt "Untermenschen" og í kjölfarið fylgir hárnákvæm skilgreining á fyrirbærinu.  

Þessum óþjóðum er lýst þannig, að þær séu svo mikill rumpulýður, að þeim sé ekki við bjargandi, - þær geti ekki stjórnað sér sjálfar og muni aldrei geta gert það, hvorki núlifandi kynslóðir né afkomendurnir.

Af þeim og sókn þeirra í að flytjast til Vesturlanda stafi mikil ógn, sem verði að bregðast hart við. 

Þetta er fróðlegt í ljósi þess, að ég er orðinn nógu gamall til að muna eftir því þegar nýlokið var tímabili þar sem farið hafði fram öflug "vísindastarfsemi" í að rannsaka óþjóðirnar, hverjar þær væru, hvar þær byggju, og gera öflugar ráðstafanir til þess að verjast þeirri óværu og ógn, sem væri fólgin í tilvist þeirra.

Þá var niðurstaðan að það væru einkum slavneskar þjóðir í austanverðri Evrópu sem væru óæðri að öllu leyti og þyrftu á því að halda vera stjórnað og þjóna hinum æðri kynþætti.

Nú eru það einkum arabískar þjóðir sem fá þennan dóm.

Þegar slavar voru skilgreindir á þennan hátt vildi svo til að helstu auðæfin, sem þeir réðu yfir, voru kornforðabúr Úkraínu og olíulindir í Rúmeníu og Kákasus.

Nú bregður svo við að helstu auðæfin, sem óþjóðir untermenschen-kvikindanna ráða yfir, eru olíulindirnar í Arabalöndunum.

Tilviljun? 

Orðalagið, "þær geta ekki stjórnað sér sjálfar", sem bæði nú og þá var notað, leiddi til þess fyrir um þremur aldarfjórðungum, að reynt var að bregðast við þessu með því að fá þær til að lúta stjórn ofurmennanna í vestri og norðri og verjast þeirri hættu, sem stafaði af þessum ómenningarlýð. 

En raunar er fyrirbærið "untermenschen" eða "óæðra fólk" mun eldra. 

Þannig var sagt spurt fyrir um tvö þúsund árum: "Getur nokkuð gott komið frá Nasaret?"

Tilefni þessarar spurningar var það, að frést hafði af merkilegum mani frá þessari guðsvoluðu borg, og fólst í spurningunni rökstuddur efi um að nokkuð gott gæti fylgd neinum þeim, sem kæmi úr röðum slíks óþjóðalýðs.

Við þekkjum svo sem gaurinn, Jesús Jósepsson trésmiðs.  

Grunsemdir um vafasaman boðskap hans spegluðust í ýmsu sem hann sagði. Hann valdi til dæmis sem persónu í eina af dæmisögum sínum mann af mjög vafasömum og lágum stigum, Samverja, en þeir voru taldir lítilsigldir í meira lagi.

Í dæmisögu Krists passaði Samverjinn alls ekki inn í lýsinguna af hinum hefðbundna Samverja.

Einnig valdi hann einn af æðri mönnum þess tíma, fræðimann og farísea, í aðra dæmisögu sína og lagði honum í munn þessa bæn: "Guð, ég þakka þér að ég er betri en aðrir menn". 

Á þeim tíma var ekki til neitt fyrirlitlegra en bersyndugar konur, og maðurinn frá Nasaret tók sig til og bjargaði henni frá verðskuldaðri refsingu að dómi þeirra tíma, með því að forða henni frá að vera grýtt í hel.

Aldrei datt mér það í hug fyrir 65 árum, þegar ég hlustaði á umræður um nýliðnar og stórfelldustu aðgerðir allra tíma gegn "óæðri" kynþáttum, óþjóðum, óþjóðalýð og rumpulýð utan vestanverðrar og norðanverðrar Evrópu, að ég myndi lifa það að heyra þetta allt saman á ný.

En lengi má manninn reyna og ekkert er nýtt undir sólinni.  


mbl.is Nýnasistar leita fylgismanna á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott, Ómar.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 16:24

2 identicon

Ekki langt síðan að mörlandinn gat ekki stjórnað sér sjálfur og leita varð til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF. En það virðist hafa farið fram hjá all mörgum, ekki síst sjalladúddum.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 16:33

3 identicon

Ég nota vanalega hugtakið "untermenschen" yfir Þjóðverja.

Leiðrétting: Jesús Jósefsson bjó aldrei í Nazareth, heldur ólst hann upp í Judeu og bjó þar langt fram á fullorðinsár sín.

Pétur D. (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 17:25

4 identicon

Sæll Ómar - sem og aðrir gestir, þínir !

Ómar !

Hege Storhaug: er reyndar, Norsk kona, svo fram komi.

Ómar og Haukur !

Í Guðanna og fjandans bænum: farið ekki úr límingunum, þó þessi ógeðfellda ungliða Nazista sveit, sé komin á kreik, að nokkru.

Eða - eruð þið búnir að gleuma:: vinskap Múhameðsku Arabanna, við Hitlers hyskið Þýzka forðum, þegar Hitler og Al- Hússeini Jerúsalem´s stórmúfti hittust, og fór hið bezta á með þeim, muni ég rétt ?

Sparið ykkur spéhræðzluna piltar - og munið:: Nazista gerpin, ásamt Múhameðskum, eiga sameiginlega, Heims yfirdrottnunarstefnuna, sem og Kommúnistarnir líka, hafi fram hjá ykkur farið.

Allt: sama packið þar á ferð / vantar bara, ónýta embættis- og stjórnmála menn, í þennan ógeðfellda hóp, sem auka- viðhengi.

Pétur D.

All áhugaverðir: þínir punktar, sem oftar.

Með beztu kveðjum: engu að síður - af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 18:29

5 identicon

 https://www.google.is/imgres?imgurl=https://pbs.twimg.com/profile_images/658326704008658944/Lk7FHNLg.jpg&imgrefurl=https://twitter.com/hegesto

Hege Storhaug er kona!

Ég geri ekki ráð fyrir því, að þú sérst búinn að lessa bókina.

Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 18:53

6 identicon

.... ónýta íslenzka embættis- og stjórnmálamenn: átti að standa þar, vitaskuld.

Afsakið einnig - ritvillur, tiltölulegrar fljótaskriftar / á köflum.

ÓHH 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 18:53

7 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Samkvæmt Wikileaks bjó Jesús í Nazareat öll sín uppeldisár. Það sem nú heitir Ísrael hét Judea á tímum Krists. 

Jósef Smári Ásmundsson, 31.7.2016 kl. 19:08

8 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

"Wikipedia" átti þetta að vera.

Jósef Smári Ásmundsson, 31.7.2016 kl. 19:19

9 identicon

Rétt er það, Hege Storhaug er kvenkyns, sem gerir hana ekki síður að “vulgar” rasista og fasista. Bókin “Þjóðaplágan Islam” var gefin út af samtökum öfga hægrimanna sem ganga undir nafninu; Tjáningarfrelsi. Í þeim hópi má finna marga þekktustu rasista á skerinu. Þess má geta að allir þingmenn fengu gefins eintak af bókinni, þeim til sáluhjálpar. Ekki er vitað hver stóð fyrir því, en margt bendir til þess að það sé Pressan, sem sagt Bingi og Magnús Þór Hafsteinsson, en sá síðarnefndi snaraði óþverranum á íslensku. Skömm fyrir alla sem stóðu að þessu; “white trash.”

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 19:32

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

"125. gr. Hver, sem opinberlega dregur dár að eða smánar trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúarbragðafélags, sem er hér á landi, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 3 mánuðum."

Almenn hegningarlög nr. 19/1940

Listi yfir skráð trú- og lífsskoðunarfélög hér á Íslandi

Þorsteinn Briem, 31.7.2016 kl. 19:47

11 Smámynd: Þorsteinn Briem

"233. gr. a. Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á mann eða hóp manna vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar sæti sektum eða fangelsi allt að 2 árum."

Almenn hegningarlög nr. 19/1940

Þorsteinn Briem, 31.7.2016 kl. 19:48

12 Smámynd: Þorsteinn Briem

"... er ég einlægur fylgismaður Falangisma Francós heitins Ríkis marskálks á Spáni, ..."

"Öxulveldin Þýskaland
og Ítalía studdu uppreisn falangista, enda verulegur skyldleiki þeirra við þýska nasismann og ítalska fasismann."

Þú ert fasisti og viðurkennir það sjálfur, Óskar Helgi Helgason.

Þorsteinn Briem, 31.7.2016 kl. 19:50

13 Smámynd: Þorsteinn Briem

Mörlenski rasistaskríllinn rottar sig saman hér á Moggablogginu.

Meindýraeyðir Íslands

Þorsteinn Briem, 31.7.2016 kl. 19:58

14 identicon

Hvað hefur Jésús Jósefsson með nauðganir, barnanýð, ofbeldi og morð íslamista dagssins í dag að gera?

Það má vel vera að Jesús Jósefsson hafi strokið mönnum öfugt fyrir 2000 árum, en sú umræða er beinlínis móðgandi, svona greindarlega séð, þegar rætt er um ósómann íslam.

Við getum alveg sleppt að ræða fjöldamorð múslima, nauðganir, barnanýð of almennt ofbeldi, en átt samt nóg til að ræða um, eins og stöðu konunnar í íslam sem er neðar húsdýrum, almennt hatur múslima á samkynhneigðum, afneitun á helstu viðurkenndum vísindakenningum, og stæku hatri á vestrænni menningu.

Íslam á ekkert erindi við siðaðar vestrænar þjóðir. Okkur hefur tekist, oft með miklu blóði og tárum, að útrýma öfgum tengdum kristni. Það síðasta sem við þurfum, er ný tegund af trúarofstæki til að berjast við. Þess vegna þarf á við ós að stemmma.

Nú er það bara spurningin, með hvaða aðferðum verður þessi á stemmd. Verður það með friðsamlegum aðferðum, eða verða aðferðirnar blóðugar og tárugar. Það er engin spurning um hvort, heldur hvenær, og ef siðspilltir vinstrimenn hafa tekið þá endanlegu ákvörðun að staðsetja sig með ósómanum, þá finna þeir sig í minnihluta, og örugglega þeim sem fara halloka. En það væri nú ekki í fyrsta sinn sem sósíalistar tapa fyrir meirihlutavilja. Nefna má nærtækari dæmi en fyrir 2000 árum, svo sem þjóðernissósialisma og kommúnisma síðustu aldar.

Hilmar (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 20:05

15 identicon

Fyrst menn er farnir að blanda syni Jósefs hér inn í umræðuefni Ómars, er þá ekki rétt að nefna þann annars ágæta gyðing sínu rétta nafni sem er Yehoshua, eða יהושע eins og það er skrifað þarna suður frá.

Jóhannes (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 20:22

16 identicon

Komið þið sælir - á ný !

Steini Briem !

Vá / skelfilegt / hræðilegt (skv. athugasemdum þínum: nr. 10 - 12), í Guðanna bænum, viltu bara ekki hlaupa í felur - áður en þú gerir í brækur þínar, Briem´ari góður ?

Eða: ertu bara vesalingur, að upplagi ?

Hvaða heilvita maður - hræðist innihaldslausar klásúlur ólaga kjaptæðis, frá 1940 / eða fyrr: eða síðar, dreng stauli ?

Veistu ekki ennþá: að þetta er einungis, ein af þeim Grýlum, sem glæpahyski valdastéttarinnar í landinu notar, gegn þeim þýlindu, sem bugta sig og beygja, fyrir því liði, Steini Briem ?

Að minnsta kosti - tilheyri ég ekki þeim, sem skjálfa á beinunum, fyrir einhverri froðu frá alþingi:: einhverri mestu glæpastofnun landsins, gagnvart almannahagsmunum (sívaxandi skattpíning og gjaldheimta af 1/2 þeirrar viðbjóðslegu stofnunar = gripdeildir grímulausar, úr vösum vinnandi fólks), daginn út - og daginn inn.

Mundu svo: í 1 skipti fyrir öll Steini - öll varnarviðbrögð eru leyfileg, gegn yfirgangslýð : Múhameðskra / Kommúnista og Nazista !

Eða - ertu ekki, farinn að átta þig enn ?

Vona bara: að þú fáir ekki niðurgang Steini minn, sökum þessarrar ofur- hræðzlu þinnar, við tilteknum alþingis klásúlum / sem annarri þvælu, úr þeirri áttinni !!!

Með sömu kveðjum og áður - verulega meðaumkvunar blendnum, til ofur- hræddra / eins og Steina Briem og annarra, af hans dapurlega calíberi //  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 20:31

17 identicon

Verða menn untermenschen af því að þeir eru múslimar, eða verða untermenschen frekar múslimar en ubermenschen?

1.500.000.000 múslimar og 6 Nobel hafar á 100 árum og þar af 4 sem fengu friðarverðlaun t.d. Arafat fjöldamorðingi og terrorist! Eru múslimar "untermenschen"?

Bara vangaveltur.

Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 20:38

18 identicon

.... Haukur fornvinur Kristinsson !

Engin: alls engin ástæða er til, að ata Hege Storhaug innihaldslausum og óþörfum uppnefnum, þó svo hún upplýsi fólk almennilega, um hlutina / eins: og þeir blasa við Norðmönnum, sem fjölda annarra víðar, ágæti drengur.

Slíkt - dregur aðeins umræðuna, niður á plan Steina Briem / sem annarra þeirra, sem láta berast með straumi heimsku og sjálfbirgingsskapar, til þess að þóknast einhvejum skussum yfirvaldanna, hverju sinni.

Svona: þér, að segja, Haukur minn.

Og munum: jafnframt. Hvíta trassið (white trash), eru jú fábjána hreyf ingar,, eins og Ku Klux Klan vestanhafs, að ógleymdum ísl, stjórnvöldum / allra flokkanna 6 (sem sæti eiga, í þinghúss kumbaldanum, við Austurvöll inn, suður í Reykjavík), t.d.

Ekki - illa meint.

ÓHH 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 20:43

19 identicon

Sæll vertu Ómar

Þakka þér fyrir gott innlegg. Ég bý um þessar mundir í Noregi og hef fylgst vel með umræðunni um vandamál innlytjenda hér í Noregi og í Svþiþjóð. Þegar maður les viðbrögð bloggheima við þínum skrifum verður manni orðavant. Er umræðan á Íslandi virkilegasvona óþroskuð, uppfull af alskyns upphrópunum og og órökstuddum dylgjum. Hvers vegna geta íslendingar ekki talað saman án þess að stökkva ofan í skotgrafirnar og kalla anndstæinginn öllum íllum nöfnum. Íslendingar í guðanabænum (spurnig í hvaða Guð er verið að vitna)þroskist þið. Maður stórskammast sín fyrir að kalla sig íslending við lestur margra ummæala á blogginu

jón Kr. Dagsson (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 20:47

20 identicon

Það er sorglegt ástand hér á blog.is, hatur hreinlega blómstrar hér svo skömm er að fyrir alla íslendinga.

DoctorE (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 21:16

21 identicon

Athyglisvert, vinstrimenn voru vanir að blanda saman dásemdum fjölmenningar saman við ofstæki gagnvart andstæðingum sínum. En nú er hún Snorrabúð stekkur, horfnar eru dásemdir fjölmenningar, en eftir stendur vinstra ofstækið og persónuárásirnar.

Það er nú sosum ekki skrýtið þó svo að dásemdir fjölmenningar séu horfnar, enda gera meira að segja vinstrimenn sér grein fyrir, að það sé dálítið sýrt að minnast á innflutning á glæstri menningu miðausturlanda meðal óteljandi fregna af morðum, nauðgunum og barnanýði sem unnin eru eftir forskrift þessarar sömu menningar.

Eftir sem áður svífur yfir spurningin sem ekki hefur verið svarað á fullnægjandi hátt, af hverju styðja vinstrimenn morð, nauðganir, barnanýð, algert ófrelsi kvenna og stækt hatur á samkynhneigðum?

Hilmar (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 21:40

22 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég segi hvergi að Jesús hafi búið í Nasaret, heldur að hann hafi verið frá Nasaret og komið úr röðum íbúa þar. "Jesús frá Nasaret," hversu oft skyldi þetta ekki vera nefnt?

Þess vegna var spurt: "Getur nokkuð gott komið frá Nasaret?"

Ómar Ragnarsson, 31.7.2016 kl. 22:00

23 identicon

Komið þið marg blessaðir - á ný !

Jón Kr. Dagsson !

O: jæja, ágæti drengur.

Kannski - megi bara, vitna í þá Vishnú - Shíva, eða aðra Guði vina minna Hindúa, jafnvel ?

Eða - einhverja, hinna fjölmörgu Guða Inkanna, suður í Perú eða Bólivíu ?

Til dæmis.

Láttu þér ekkert bregða: við mismunandi ummæli manna, hér á hinni gestrisnu síðu Ómars fjölfræðings Ragnarssonar, Jón minn.

DoctorE !

Ekki: er um neitt hatur að ræða af minni hálfu, til nokkurrs manns hér á vefnum, Doctor minn.

Hins vegar - tali ég fyrir mína hönd eins, hefi ég jú, fullkomna andúð á hvers lags forheimskun og fáfræði ýmissa, svo sem fylgispekt sumra, við villimennzkunni sunnan frá Mið- Austurlöndum, t.d.

Tekurðu eftir því DoctorE: hversu Japanir - Suður- Kóreumenn og Taíwanar t.d., eru iðnir, hvern einasta dag, að finna upp á alls lags tækjum og tólum, sjálfum sér / sem okkur og öðrum til þægindaauka í daglega lífinu, á sama tíma, og Múhameðsku fíflin, eru í því að drepa sjálfa sig og aðra, til þess að þóknast þvælu úr um eða yfir 1400 ára gamalli bókar skruddu Sólstungins vitfirrings, suður á Arabíuskaga ?

Skruddu - sem er álíka viðbjóðsleg, og Gamla Tesatmenti Móse og Abrahams:: drullusokka, sem voru af álíka óeðlis uppruna, og Múhameð fals-spámaður, reyndar.

Með sömu kveðjum: sem seinustu, vitaskuld / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.7.2016 kl. 22:37

24 Smámynd: Sæmundur G. Halldórsson

Það er athyglisvert í þessum annars ágæta pistli Ómars að hann nefnir Gyðinga ekki einu orði. Gæti það verið vegna þess að yfirlýst andúð á Gyðingum eða hreint og beint hatur virðist orðið forsenda þess að mega teljast vinstri maður á Íslandi? Reyndar passa flestir sig nú á því að skammast bara út í helv. síonistana/Ísraela. Þó býr helmingur núlifandi gyðinga í Ísrael. Viðkomandi hatar þá bara annan hvorn gyðing! Síonismi þýðir ekkert annað en að maður styðji þá áætlun að gyðingar þessa heims eigi sér eitt þjóðríki, þar sem þeir geta stjórnað sér sjálfir. Því er varla til sá gyðingur í heiminum sem ekki er síonisti. Ríki sem eru yfirlýst múslimaríki eru 57. Varðandi innlegg Valdimars (með allri virðingu fyrir menntuðum og vel gefnum múslimum sem eru fjölmargir, en kannski eru þeir aðeins múslimar að nafninu til): https://en.wikipedia.org/wiki/List_of_Jewish_Nobel_laureates

Sæmundur G. Halldórsson , 1.8.2016 kl. 16:10

25 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Kæri Ómar

ég er næstum viss um að þú vitir vel að mér er hlýtt til þín og hefur svo verið alveg frá því að við vorum kornungir verkamenn í Skúlaskála Eimskips rétt upp úr miðri síðustu öld.

Ég er alveg handviss um að þú ert góður maður sem öllum vilt vel og ég vil að þú haldir það sama um mig.

Þess vegna rennur mér til rifja hvað umræða þín er ávalt fráleit þegar íslam er annars vegar og hversu fáránlega þú ert dómharður um þá sem vara við innrás íslam inn í Vesturlönd.

Ég vil því bjóða þér að fræða þig um íslam með einkatíma þar sem þú getur jafnan skotið inn spurningum og þarft því ekki að sitja yfir afar löngum og þreytandi fyrirlestri. Ég veit að þú hefur ekki skapgerð fyrir slíkt.

Kunnátta mín um íslam byggir ekki á hatri á fólki. Þvert á móti. Ég er sammála Hege Storhaug sem er kona en ekki karl, að gagnrýni á íslam er sennilega mikilvægara fyrir múslíma en nokkurn annan hóp manna. Þessu fólki þarf að hjálpa út úr hræðilegri hugmyndafræði, sem þeir hafa verið hremmdir í.

Vertu nú skynsamur og þiggðu þetta góða boð. Hringdu í mig:

Valdimar Jóhannesson, GSM 897 2514

P.S. Við erum ekki alltaf á ölndverðu meiði. Ég gékk með þér á sínum tíma gegn

virkjun í Eyjabökkum.

Valdimar H Jóhannesson, 1.8.2016 kl. 18:11

26 identicon

Hege Storhaug er kona
Hege Storhaug er sósíalisti og því varla öfga hægrisinnuð.
Hege Storhaug tekur þátt í allri opinberri umræðu um Islam í Noregi, jafnvel á hinu vinsrisinnaða NRK.
Hege Storhaug á marga vini sem eru múslimar og standa þétt við bakið á henni með útgáfu bókarinnar....því Islam er múslimum verst.
Ómar Ragnarsson og fyglismenn hans hér hafa greinilega ekki svo mikið sem opnað bókina Þjóðarplágan Islam, sem fjallar um islam en ekki múslima.

Dæmigerð gífuryrða-umræða af Ómars hálfu og hans fylgismanna byggð á þekkingarleysi og fordómum. Eini rasisminn sem hér er á ferðinni er rasismi Ómars og fylgismanna gegn venjulegum Íslendingum. Ómar og fylismenn eru því sjálfir "ubermenschen" sem líta á samlanda sína sem eru annarar skoðunar sem "untermenschen". Sendi því þessa grein heim til föðurhúsana.

Virðingarfyllst,
  ÞJ

Þröstur Jónsson (IP-tala skráð) 1.8.2016 kl. 18:16

27 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Maður er bara svo hissa.  Manni er beisiklí orða vant.  Er svo hissa.

Innrætið virðist alveg hroðalegt hjá sumum innbyggjanum.

En bara hvað menn láta útúr sér, hve ofstækið er í raun mikið.  

Og menn virðast ekki einu sinni fatta sjálfir hve þetta er hrottalegt hjá þeim.

Auðvitað má ekki gleyma því að sumir á netinu geta hugsanlega átt við einhverja andlega erfiðleika að stríða.  Má ekki gleyma því.  Fá einhver köst og sona.

En soraumræðan er bara orðin svo áberandi og á mörgum stöðum, - að maður er alveg krossbit og veit ekki hvert þetta ofsa-hægrilið og þjóðrembingar ætla í rugli sínu

Ómar Bjarki Kristjánsson, 1.8.2016 kl. 20:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband