1.9.2016 | 19:46
Kári í jötunmóð.
Nú er fár á Fróni, /
frost við ríkissjóð, /
kyrjar kuldaljóð /
Kári í jötunmóð. /
Yfir heilsutjóni /
æðrast læknirinn, /
harmar hlutinn sinn /
hjúkrunin.
Kári safnar liði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Frábært - Maður þarf að vera hugsandi og vakandi til að kasta svona fram.
Már Elíson, 1.9.2016 kl. 20:48
Þorsteinn Briem, 1.9.2016 kl. 22:49
1.9.2016 (í dag):
"Sjálfstæðisflokkur mælist með 26,3% fylgi og Píratar með 25,8% en munurinn mælist ekki marktækur.
16,2% ætla að kjósa Vinstri græn, svipað og síðast. Viðreisn bætir við sig 1,5% og mælist nú með 10,6%.
Framsóknarflokkurinn mælist með 9% og missir 0,9% frá síðustu könnun.
Samfylkingin stendur í stað með 8,3% en Björt framtíð missir 1% og mælist með 2,9%.
Um 1% aðspurðra myndi kjósa aðra flokka og þar af segjast 0,6% kjósa Íslensku þjóðfylkinguna.
Næstum 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 7% myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.
Miklar breytingar yrðu á skipan Alþingi ef þessi könnun gengi eftir.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins breyttist minnst, hann er nú með 19 menn á þingi en fengi 17 miðað við kjördæmaúthlutun.
Framsóknarflokkurinn yrði ekki svipur hjá sjón. Hann er nú með 19 þingmenn en fengi 6 ef gengið yrði til kosninga nú og engan mann kjördæmakjörinn í Reykjavíkur- og Suðvesturkjördæmunum.
Píratar eru nú með 3 þingmenn en fengju 17 þingmenn, jafnmarga og Sjálfstæðisflokkurinn.
Píratar mælast stærstir í kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu, fengju 9 kjördæmakjörna þingmenn þar, en Sjálfstæðisflokkurinn 8.
Vinstri græn eru nú með 7 þingmenn en fengju 11, flesta í Norðausturkjördæmi.
Viðreisn fengi 7 þingmenn. Samfylkingin er með 9 þingmenn nú en fengi 5 og engan mann í Norðvestur- og norðausturkjördæmunum.
Björt framtíð, sem nú er með 6 þingmenn, myndi þurrkast út ef gengið væri til kosninga nú."
Þorsteinn Briem, 1.9.2016 kl. 22:52
Og hvernig tengirðu þetta við frábæran brag Ómars vegna nýrra frétta af Kára, Steini ? - Þér er ekki alls varnað í heimsku þinni og slærð hvert metið á fætur öðru...sem endranær.
Már Elíson, 1.9.2016 kl. 23:33
Ef við tökum saman fylgi Íhaldsins, Viðreisnar og Framsókn er útkoman 45,9%.
Mér sýnist vera sami rassinn undir Íhaldinu og Viðreisn, og hækjan blífur hækja.
Sem sagt status quo á skerinu.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 1.9.2016 kl. 23:41
Helköld höndin blá
hefur ráðin fá
ljúga lítið má
lifnar Kári þá
Yfir atkvæðum býr
eldriborgarinn
einnig öryrkinn
Andskotinn!
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 2.9.2016 kl. 00:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.