Bjúgverpill.

Bjúgverpill (boomerang), vopn frumbyggja Ástralíu, hlaut heimsfrægð þegar hvítir menn námu þá álfu. Vopnið ku vera kastvopn, sem hefur þann loftflæðisfræðilega eiginleika að taka beygju á fluginu og fljúga til baka til þess sem beitir því. 

Þess eðlis virðist sú ætlan Donalds Trumps hafa verið að skaða framboð Hillary Clinton með því að grafa upp gömul kvennavandræði manns hennar og klína þeim á hana.

Í upphafi skyldi endinn skoða og Trump sást yfir þann möguleika, að svipað yrði hægt að nota gegn honum.

Honum sást einnig yfir það, að nokkur munur var á stöðu hans og Bill Clinton.

Bill er ekki í framboði, þótt hann sé eiginmaður Hillary og myndi þar af leiðandi verða búsettur í Hvíta húsinu, ef hún yrði forseti.

Trump getur sjálfum sér um kennt, verði umræðan um kvennamál næstu búseta í Hvíta húsinu honum til tjóns. Hann hóf þessa umræðu.   


mbl.is „Ég trúi eiginmanni mínum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mofi

Það var herferð Clintons sem byrjaði þessa umræðu, ekki Trump. Að rétt fyrir kosningar skuli þetta lið draga upp áratuga gamlar sögur til að reyna karakter morð á Trump er lákúra af verstu gerð og við höfum góðar ástæður til að ætla að þetta séu lygar, sjá: https://www.youtube.com/watch?v=Nry7XhjFtpE

Það stendur yfir áróðushernaður um valdamesta starf heimsins og Clinton er með megnið af fjölmiðlum í vasanum og þeir hika ekki við að ljúga til að ná fram sínum áætlunum. Alveg burtséð frá því hvort manni líst vel á Trump eða ekki þá er það siðferðisleg skilda manns að hafna þeim sem velja að nota aðferðirnar sem Clinton notar.

Mofi, 18.10.2016 kl. 08:29

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Very rich is Donald Trump,
not as smart as Forrest Gump,
a big fool,
never cool,
finally they will him dump.

Þorsteinn Briem, 18.10.2016 kl. 08:35

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

23.3.2016:

"Meiri­hluti Íslend­inga myndi kjósa Hillary Cl­int­on sem næsta for­seta Banda­ríkj­anna ef þeir hefðu kosn­inga­rétt í land­inu eða 53%.

Þetta kem­ur fram í niður­stöðum nýrr­ar skoðana­könn­un­ar Maskínu.

Rúm­lega 38% myndu hins veg­ar kjósa keppi­naut henn­ar um að verða for­setafram­bjóðandi Demó­krata­flokks­ins, Bernie Sand­ers.

Þá myndu 4-5% styðja auðkýf­ing­inn Don­ald Trump sem notið hef­ur mests fylg­is í for­vali Re­públi­kana­flokks­ins."

Einungis um 5% Íslendinga myndu kjósa Donald Trump

Þorsteinn Briem, 18.10.2016 kl. 08:36

4 Smámynd: Stefán Þ Ingólfsson

Boomerang heitir reyndar bjúgverpill á íslensku.

Stefán Þ Ingólfsson, 18.10.2016 kl. 10:09

5 identicon

Bjúgfleygur er tákn,

Hver var að æsa sig yfir "tvívængja" fyrir nokkrum dögum síðan?

Hábeinn (IP-tala skráð) 18.10.2016 kl. 11:25

6 Smámynd: Ómar Ragnarsson

 Ég játa auðmjúkur mistök, minn ágæti Hábeinn, og breyti bjúgfleyg í bjúgverpil. Annars verður bjúgfleygsnotkunin að bjúgverpli í málnotkun minni.  

Ómar Ragnarsson, 18.10.2016 kl. 12:56

7 Smámynd: Mofi

Fyrst þú ert mjúkur Ómar, jafnvel auðmjúkur, þá er um að gera að játa að það var Hillary herdeildin sem byrjaði kynferðis skítkastið með því að draga stutta klippu af prívat samtali Trumps fyrir meira en áratug síðan.

Mofi, 18.10.2016 kl. 17:18

8 identicon

Ekki þreytist Mófi á að bera í bætifláka fyrir Dónald. Löngu er ljóst hvoru megin hjarta hans slær. Sérlega er þó merkilegt að í svari sínu mun hann vísa til réttlætiskenndar sinnar til að færa heim sanninn um að frú Clinton sé verri en andskotinn og Dónald fórnarlamb.

Er þó mála sannast að enginn skynsamur maður tekur málstað Dónalds. Hvar mun það flokka Mófa?

Þorvaldur S (IP-tala skráð) 18.10.2016 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband