21.3.2017 | 01:10
Ömurleg málaferli.
Vatnajökull er kóróna landsins og á að verða hryggjarstykkið í nýrri en þó fornri hugsun þess efnis að náttúran, og þá helst mestu náttúruverðmætin séu sama eðlis og Þingvellir, að um þjóðareign sé að ræða sem aldrei megi selja né veðsetja.
Trú inúíta, indiána og ásatrúarmanna á borð við Ingólf Arnarson gerði náttúruna og auðlindir hennar að sérstökum lögaðila.
Ingólfur lét heimilisguði sína, Þór og Frey, sem voru greyptir í öndvegissúlurnar, friðmælast við landvættina við landtöku í Reykjavík í sérstakri fórnarathöfn.
Ingólfur taldi að Hjörleifur hefði goldið fyrir það með lífi sínu að hafa ekki friðmælst við landvættina.
Vegna þessarar trúar og sjónarmiða eru engir landeigendur til á Grænlandi, ekki heldur lóðareigendur.
Þegar Vatnajökulsþjóðgarður var stofnsettur var það haft sem grunnur að fylgja þáverandi jökulrönd.
Það er fráleitt að gera slíkt á hratt hopandi jökli og frekar hefði átt að draga þessa línu þar sem jökullinn komst lengst fram milli 1890 og 1920 þannig að þegar hann hopaði til baka, féllu þau nýju jökullón, sem mynduðust þar sem jökullinn var áður, yrðu innan þjóðgarðsins.
Málareksturinn vegna Jökulsárlóns er ömurlegt tákn um þá tregðu sem valdaöfl hér á landi standa fyrir varðandi varðveislu og vernd mestu verðmæta landsins, sem við höfum sem landverðir einungis að láni frá afkomendum okkar og mannkyni öllu.
Fögrusalir töpuðu í Hæstarétti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hæstaréttardómur nr. 345/2005:
"Úrskurður óbyggðanefndar 14. nóvember 2003 að því er varðar mörk eignarlands jarðarinnar Fells í sveitarfélaginu Hornafirði og þjóðlendu er felldur úr gildi.
Skal um mörk þessi fara svo: Að austan frá vesturmörkum jarðarinnar Reynivalla í jaðri Vatnajökuls, sem er punktur A, og þaðan í punkt C sem á uppdrætti er í Þröng við Breiðamerkurjökul.
Frá punkti C skal jaðar Breiðamerkurjökuls, eins og hann var 1. júlí 1998, ráða mörkum eignarlands og þjóðlendu þar til kemur að línu sem dregin er frá punktinum H í ósnum úr Jökulsárlóni að Prestsfelli, síðan eftir þeirri línu í punkt H og þaðan eftir miðri Jökulsá í punktinn G við ströndina.
Telst land norðan og vestan þessarar markalínu þjóðlenda, en sunnan og austan hennar eignarland Fells."
Flatarmál þjóðlendunnar minnkar því ekki þótt jökullinn minnki.
Þorsteinn Briem, 21.3.2017 kl. 05:04
Yfirlitskort yfir þjóðlendur á svæðum 1-8b að teknu tilliti til endanlegra dómsúrlausna - Október 2016
Þorsteinn Briem, 21.3.2017 kl. 05:12
Lög um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007
Þorsteinn Briem, 21.3.2017 kl. 05:19
Takk, Steini. Þetta er allt sama rétt hjá þér, en ég er að fjalla um málið lengra aftur í tímann, frá því að jökullinn þakti það svæði þar sem síðar kom Jökulsárlón.
Sem dæmi um mögnuð náttúrufyrirbæri við jaðar jökulsins 1890 má nefna svonefnda Sauðárhrauka, einstæða hólaröð um sex til sjö kílómetra norðan við núverandi jökulrönd Brúarjökuls, en þessa hólaröð bjó jökullinn til við hrikalegt framhlaup sitt 1890.
Þessir hólar ætti hiklaust ásamt Kverkárlóni og tjörnum og smálónum á milli Sauðárhrauka og núverandi jökulrandar, að tilheyra þjóðgarðinum.
Ómar Ragnarsson, 21.3.2017 kl. 11:22
Þið Steini eigið bara hittast og spjalla yfir kaffibolla í staðin fyrir að skrifast svona á hér á Mogga blogginu...:)
Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 21.3.2017 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.