7.11.2017 | 23:55
Tvær aðaluppsprettur hlaupa í Jökulsá á Fjöllum.
Vatnasvið Jökulsár á Fjöllum er stórt. Kverká og Kreppa koma með vatn úr Brúarjökli.
Og frá tveimur af þremur hæstu eldfjöllum landsins, Kverkfjöllum og Bárðarbungu, kemur vatn í ána undan Dyngjujökli.
Komið hefur fyrir að stíflulos í Kverkfjöllum, þar sem er mikill jarðhiti undir jökli og á yfirborði, hafi valdið hlaupum í ánni, en einnig óx jarðhiti undir vestanverðum Dyngjujökli þegar umbrot urðu undir jöklinum í aðdraganda Holuhraunsgossins.
Jarðhiti er það mikill í austanverðri Bárðarbungu að í fyrsta skipti í sögunni var hægt síðsumars að horfa niður í gegnum jökulinn ofan í jarðhitasvæðið í gegnum lóðrétt op, sem hitinn hafði brætt.
Rafleiðni í ánni farið hækkandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.