2.6.2018 | 09:36
17 stig í háfjallasól.
Það var þvílík blíða í flugferð frá Rangárvöllum til Sauðárflugvallar í gær, að það er úr nógu að moða til að setja á blogg og facebook næstu daga.
Við völtun vallarins, sem tekur heilan dag vegna fjölda og lengda brautanna, var ekki ónýtt að nýta sér það, að það er sóllóga á gamla fornbílnum sem dregur valtarann og hægt að sóla sig helminginn af tímanum.
Þetta er í 660 metra hæð yfir sjó, svipað og Vífilsfellið, og Snæfell og Kverkfjöll njóta sín vel á svona dögum.
Á austurenda flugvallarstæðisins er ágætt útsýni yfir Sauðá til Kverkfjalla.
Þennan stað hef ég nefnt "útsýnisstað Hitlers" í bók, sem ég hef haft í smíðum og fjallar um þýska jarðfræðiprófessorinn Emmy Todtmann, sem fór alls þrettán ferðir til Íslands til mestan part að rannsaka Brúarjökul og sköpunarverk hans.
![]() |
Allt að 20 stiga hiti fyrir austan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þarf ekki leyfi fyrir því búa til flugvöll þarna og valta yfir viðkvæman gróður?
Hermundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 3.6.2018 kl. 00:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.