1.7.2018 | 18:27
Hve langt fleyta heimavellirnir Rússum?
Saga HM í fótbolta geymir dæmi um það að lið gestgjafanna hafi komist langt á því að spila ævinlega á heimavöllum, svo sem silfurlið Svía 1958 og heimsmeistarar Vestur-Þjóðverja 1974.
Það var í alvöru rætt um það fyrir mótið núna að Rússar verðskulduðu ekk að vera með á mótinu eingöngu út á það að vera gestgjafaþjóðin, vegna þess hve lélegt rússneska landsiðið væri.
En liðið fékk óskabyrjun í fyrsta leik og er nú komið í átta liða úrslit, þvert á hrakspárnar fyrir mótið.
Á HM 1958 sigldi lið Svía í svipuðun meðvindi en tapaði úrslitaleiknum illa fyrir Brasilíumönnum.
Hollendingar voru með besta landslið heims 1974 og virtist stefna í sigur í úrslitaleiknum við Vestur-Þjóðverja eftir frábært gengi fram að því, sem var mun betra en hjá þeim þýsku.
En þetta snerist við í úrslitaleiknum þar sem Hölsenbein "fiskaði" vítaspyrnu sem ekki hefði verið dæmd ef nútíma myndbandstækni hefði verið notuð.
Þrátt fyrir svona dæmi virðist vera ólíklegt að Rússar kræki sér í gullið núna.
Rússland hafði betur í vítaspyrnukeppni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki ólíklegt að Svisslendingar verði heimsmeistarar.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 1.7.2018 kl. 22:42
Var að koma heim frá Rússlandi.Rússar voru og eru frábærir heim að sækja voru mjög vinsamlegir þeir flautuðu á bílum sínum og eða heilsuðu íslendingum á götu úti með virtum hvar sem við HM fararnir komum við í íslensku landsliðsbúningunum í borgunum Moskvu,Volgograd og Rostov sem dæmi. Síðasta daginn sem ég var í Moskvu áður en haldið var til Volgograd var ég ekki í búninginum til að losna áreitið sem kom til vegna virðingu rússa og fleiri þjóða fyrir íslendingum sem við fundum fyrir sem voru á HM í þessu stóra landi Rússlandi
Takk Rússland og Áfram Rússland á HM:)
Baldvin Nielsen
B.N. (IP-tala skráð) 4.7.2018 kl. 08:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.