6.7.2018 | 11:00
Fordæmalausar hremmingar. Menn til tunglsins en ekki til drengjanna.
Raunir tailensku fótboltadrengjanna eru fordæmalausar og enn sárari fyrir þá sök að þessa þolraun þeirra skuli bera upp á sama tíma og úrslitaleikir HM fara fram.
Þetta er svo ægileg þolraun á allan hátt, að hætt er við að óskir um að þeir geti leitt leikmenn í lokaleik HM inn á völlinn virki barnalegar, svo máttfarnir og þrekaðir sem þeir eru þegar orðnir.
Á næsta ári verða 50 ár liðin síðan menn voru sendir til tunglsins en það virðist vera mönnum um megn að bjarga þessum drengjum frá beiskum bana.
Boðið á úrslitaleikinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Ómar.
Það er of seint að bjarga andlitinu gagnvart Rússum.
En við getum tafarlaust slitið stjórnmálasambandi við Breta
þar til ÞEIR gefa skýringu á þessum skrýpaleik.
Allur Rússafiskur hefur gengið Færeyingum í greipar
og tjón Íslendinga nemur miljörðum á miljarða ofan.
Þeir sem leiddu okkur á fölbláum asnaeyrunum til þessa leiks
eiga að svara til saka.
Húsari. (IP-tala skráð) 6.7.2018 kl. 12:30
Sæll Ómar - sem og aðrir gestir, þínir !
Ómar !
Vel mælt: miðað við þessar skelfilegu aðstæður drengjanna, og þjálfara þeirra.
Húsari !
Megi Færeyingarnir vel - og sem lengst, njóta afraksturs þeirra Milljarða Króna, sem Íslenzk fífl:: undir forystu Gunnars Braga Sveinssonar, sem og arftaka hans Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, glutruðu úr kámugugum lúkum sjálftöku og spillingar: hérlendrar.
Enda - Færeyingum betur treystandi / sem og flestum annarra, fyrir öllum veraldarinnar gæðum, sem íslenzkum smámennum er um megn:: hvort sem í Krónum er talið eða Aurum eða öðru, Húsari góður.
Það er ekki að undra: að Fullveldis fagurgalinn sé orgaður úr íslenzkum börkum (þessi misserin: og dagana), undir forsöng Guðna Th. Jóhannessonar, og annarra ýmissa sprelligosa hér á landi, Húsari minn.
Með beztu kveðjum sem oftar - af Suðurlandi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.7.2018 kl. 14:06
Hef lengi ekki heyrt i okkar ágæta Óskari Helga. Hélt hann hefði safnast til feðra sinns. En svo er greinilega ekki, Guði sé lof og prís.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 6.7.2018 kl. 14:35
Sælir - að nýju !
Haukur fornvinur Kristinsson !
Nei Haukur minn: því er nú verr og miður / að ennþá er ég uppi standandi, þó mér þyki nóg hafa lifað:: búinn að ljúka liðlega 1/2 aldar skeiði æfi minnar, með tilheyrandi þátttöku í verðmætasköpun, til sjávar og sveita, því ég hugsa í þeim efnum, líkt Rómverjunum forðum, að 40 - 60 ára aldur sé feykinóg: svona yfirleitt, a.m.k.
Ekki síðri kveðjur / hinum fyrri, svo sem //
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.7.2018 kl. 15:06
Óskar Helgi! Megi Færeyingar njóta vel og lengi!
Lifðu heill, fornvinur góður!
Húsari. (IP-tala skráð) 6.7.2018 kl. 15:34
HA fór USA til tunglsins - var það ekki bara bíómynd
Annars var það mun meiri þolraun að bjarga námuverkarmönnunum hér um árið
Borgari (IP-tala skráð) 6.7.2018 kl. 19:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.