17.7.2018 | 22:17
Hugsið ykkur hvað margt hefur breyst
Eitt af því sem er stórt atriði í kjarabaráttu ljósmæðra er aukin menntun þeirra. Þær eru komnar langan veg frá því sem var fyrir u.þ.b. 100 árum. Og það er þessum framförum að þakka að barnadauði er minnstur á Íslandi í heiminum.
Gamansaga sem afi minn sagði mér frá Vestmannaeyjum bregður ljósi á hversu miklar framfarir hafa orðið.
Útgerðarmaður í Vestmannaeyjum sem hét Guðlaugur þótti afar nískur. Hann þurfti að fara á sjó en kona hans átti þá von á barni. Var hún beðin um að senda skeyti en fara sparlega með kostnað vegna þess.
Nú varð konan léttari og var Guðlaugi sent skeyti svohljoðandi: Drengur fæddur. Berta sótt. Blind, billegri.
En þá voru ljósmæður í eyjum fleiri en ein en sú þeirra sem var blind tók minna fyrir viðvikið. Þess vegna var hún sótt fyrir hinn aðhaldsama föður.
Mótmælin hafin á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ómar minn. Nískur útgrðar Vestmannaeyjapeyji gömlu daganna?
Þegar ljósmæður geta ekki bjargað barni í fæðingarferð sinni í þennan jarðarheim, þá virka verkferlar þannig að læknar mæta með tengur og skurðhnífa, til að klára hjálpræðisverkið við að koma barninu í heiminn.
Hvers vegna er ekkert talað um þetta verkferla-batterí læknanna stjóra, í öllu fjaðrafokinu á múgæsingsplaninu "ríkis-sátta-semjara"-stýrða?
Ég bara spyr?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 17.7.2018 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.