9.11.2018 | 00:25
Búið að vera ígildi dýrkeypts brandara upp á tugi milljarða.
Milli Salahverfis í Kópavogi og Seljahverfis í Reykjavík er svo stutt, að þetta eru kannski niður undir 100 metra á milli sumra húsa í Reykjavík og í Kópavogi.
En í staðinn að hafa þarna ökuleið í gegn eða jafnvel ökuleiðir, hafa vegalengdirnar á milli einstakra húsa í hverfinu verið einhverjir þrír til fimm kílómetrar.
Lítur út eins og brandari en þegar litið er vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið er samanlagður brandari skipulagsfáránleika orðinn ansi dýr í gegnum áratugina.
Er svo sannarlega mál að linni.
Hverfi tengd með nýjum strætóvegum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.