6.12.2018 | 13:21
Margþættar aðgerðir það eina sem gagnar.
Umræðan um umferðarvandræðin fer oft ofan í skotgrafir hér á landi. Margir bölsótast yfir því að hugað sé að öðrum atriðum en því að reyna að stórauka opinber framlög til að liðka um fyrir einkabílnum, svo sem til mislægra gatnamóta og breikkunar stofnbrauta til þess að leysa plássvanda einkabíla af ótakmarkaðri stærð.
Lítið er gefið hjá þessum mönnum fyrir reynslu annarra þjóða af þessu viðfangsefni.
Búist er við fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu um 50 þúsund manns á næsta áratug. Ef höfuðáherslan verður lögð á framkvæmdir, sem eingöngu verða miðaðar við ótakmarkaða stærð einkabíla, mun þeim fjölga um minnst 30 þúsund.
Þessir 30 þúsund bílar myndu einir og sér taka 50 kílómetra langt rými í gatnakerfinu.
Nú þegar taka malbikuð svæði, akbrautir og stæði, 50% af flatarmáli Reykjavíkur.
Alls staðar í heiminum eru það staðreyndir af þessu tagi sem fá menn til viðurkenna, að það er hvorki til rými né fé til þess að ráða við þennan vanda með ofangreindri aðferð einni og sér.
Erlendis aðgerðir og hafa verið margþættar, meðal annars þessar:
1. Þeim er ívilnað, sem aka á styttri bílum. Í Japan er miðað við 3,40 metra, og eftir margra áratuga reynslu hefur þetta komið í veg fyrir algerlega óviðráðanlegan umferðarvanda þar í landi. Síðuhafi hefur, þegar hann er ekki á hjóli, ekið síðan í fyrra á tveggja sæta rafbíl, sem er 2,88 m á lengd, og tveir slíkir bílar gefa í raun eftir pláss í gatnakerfinu fyrir einn auka einkabíl af íslenskri meðalstærð.
Meðalfólksbíllinn á Íslandi er líkast til 4,6 metrar, en minnstu 4-5 manna bílarnir hér eru í kringum 4,0 metrar, á stærð við Yaris og Polo. 100 þúsund bílar fara um Miklubraut við Elliðaárnar á hverjum degi. Stytting meðalbílsins úr 4,6 m í 4,0, samsvarar því að 60 kílómetrar verða auðir á Miklubrautinni á hverjum degi, sem nú eru þaktir bílum.
2. Sums staðar í Bandaríkjunum, landi einkabílsins, er bílum með einum manni um borð ekki hleypt frítt inn á vissar stofnbrautir. Það verða að vera tveir eða fleiri um borð. Ef Bandaríkjamenn tryðu á þá íslensku lausn, sem margir trúa á, að breikka og stækka öll mannvirki til þess að leysa úr umferðarteppum myndu þeir ekki grípa til svona aðgerða.
3. Hver maður, sem er á reiðhjóli eða vélhjóli, gefur í raun eftir pláss fyrir einn einkabíl í umferðinni og léttir þar með vanda fólks á einkabílum. Þess vegna eru hjól svona algeng í flestum löndum heims þar sem rýmið á götunum er lítið. Síðuhafi hefur verið ferðinni á annað hvort rafreiðhjóli eða léttu "vespu"vélhjóli í þrjú ár í hverri einustu viku ársins, oftast samfellt dag eftir dag, og tal um "of slæmt veður" hefur reynst mjög orðum aukið.
4. Bætt form af almenningssamgöngum eins og víða hefur verið komið á erlendis. Skortur á heildarskipulagi höfuðborgarsvæðisins hefur verið trafali fyrir slíkt, en það hlýtur að vera hægt að nýta sér reynslu annarra þjóða.
5. Möguleiki, sem hvergi hefur verið íhugaður, svo mér sé kunnugt, að gefa þeim, sem þess óska og þætti gott að hafa mjög lítinn bíl innan bæjar en eiga stærri bíl til lengri ferða, kost á að hafa um borð í stærri bílnum innsiglaðan vegalengdateljara sem gæfi kost á að borga opinber gjöld í hlutfalli við ekna vegalengd. Kerfi, svipað þessu, var notað við dísilbíla hér um árið, og núna hefði maður búist við að bylting í tölvutækni gæti auðveldað svona fyrirkomulag.
Tafir í umferðinni kosta 15 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta eru allt skynsamlegar tillögur. Þessu til viðbótar má nefna að millistig almennings- og einkasamgangna ætti að geta komið til álita líka sem leið til að draga verulega úr umferðarþunga. Með nútímatækni ætti samnýting bifreiða að geta verið mjög einföld í framkvæmd. Það mætti hugsa sér kerfi þar sem fólk getur samnýtt bifreiðar á sömu eða svipaðri leið. Vitanlega þyrfti að greiða eitthvað fyrir slíka þjónustu, en þar stendur hnífurinn í kúnni: Það er auðvitað bannað á Íslandi að taka gjald fyrir fólksflutninga nema maður sé leigubílstjóri. Ef það bann yrði afnumið myndi ekki líða á löngu þar til þrír eða fjórir yrðu um hverja bifreið, en ekki einn.
Þorsteinn Siglaugsson, 6.12.2018 kl. 23:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.