11.2.2019 | 07:47
Munur á umferðarmenningu og hugsun hér og erlendis.
Síðuhafi hefur tengsl við nokkra Íslendinga, sem búa erlendis, og eru sammála um það, að þegar þeir koma í heimsókn til Íslands sé það ákveðið menningarsjokk.
Nógu mikill mismunur á hegðun að það taki tíma að venja sig við það að eiga von á nánast hverju sem er.
Hér á landi ríki banvæn blanda af streitu, óþoli og alveg einstakri sjálfhverfu, en sem dæmi ríki allt annar andi hjá frændþjóðum okkar á Norðurlöndum þar sem hefð er fyrir því að hugsa heildstætt um sameiginlega hagsmuni allra varðandi það að umferðin gangi eins vel og örugglega fyrir sig og unnt er.
Kolrangar skyndihugdettur eru framkvæmdar, samanber bílstjórann á Reykjanesbrautinni, sem olli alvarlegu bifhjólaslysi í fyrra með því að taka skyndilega u-beygju yfir miðlínu brautarinnar.
Þetta eru lang algengustu slysin.
Síðuhafi hefur tvívegis með þriggja ára millibili lemstrast og beinbrotnað á rafreiðhjóli vegna þess, að ökumenn, sem voru hið næsta honum, tóku ófyrirséðar ákvarðanir sem byggðust óframkvæmanlegum skyndihugdettum þvert ofan í aðstæður.
Vandinn liggur djúpt ofan í landlægr hugsun (eða hugsunarleysi) og hegðun okkar í umferðinni.
Annar þeirra leit sem snöggvast til vinstri þegar hann kom á bíl að gangbraut fyrir gangandi og hjólandi fólk, sem liggur yfir aðrein til hægri frá Grensásvegi til vesturs inn á Miklubraut.
Honum sýndist að bil á milli bíla á Miklubrautinni gæfi honum færi á að skjótast inn í það og gleymdi í leiðinni að hann hafði hægt á sér fyrir umferð sem var að fara inn á gangbrautina.
Um leið og hann jók hraðann til að skjótast áfram, gleymdi hann þeim sem var að fara inn á gangbrautina og sá á því augnabliki ekkert fram fyrir sig vegna þess að lág kvöldsól blindaði hann.
Hann lenti því á aftanverðu rafhjólinu á þann hátt að hjólreiðamaðurinn sá hann ekki koma.
Í hinu atvikinu tók rafhjólreiðamaður upp á því að reyna að lesa af illlæsilegum rafhlöðum´li á hjóli hans með því að horfa niður á hann og hætta að fylgjast með umferð á móti.
Þetta tók lengri tíma en hann hafði áætlað og vegna ógreinilegrar merkingar á hvítu strikunum á miðjum hjólastígnum, sveigði hann yfir á rangan stígshelming beint í veg fyrir hjól sem kom á móti.
Mun ekki auka öryggi gangandi fólks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Af hverju ert að storka örlögunum Ómar?
Síðuhafi hefur tvívegis með þriggja ára millibili lemstrast og beinbrotnað á rafreiðhjóli vegna þess, að ökumenn, sem voru hið næsta honum, tóku ófyrirséðar ákvarðanir sem byggðust óframkvæmanlegum skyndihugdettum þvert ofan í aðstæður.
Hættu að hjóla og leyfðu okkur að njóta þín lengur. Mundu það þegar ég segi það af reynslu að ef maður er að hjóla á vélknúnum tgækjum þá er það aðeins spurning um hvenær, ekki hvort.
Halldór Jónsson, 11.2.2019 kl. 07:55
Ef ég þarf endilega að velja á milli þess að hjólreiðamaður, sem kemur á móti mér, fari skyndilega yfir á öfugan helming og lendi framan á mér á 20 km hraða, eða að bílstjóri sem kemur á móti mér á vegi beygji skyndilega yfir á öfugan vegarhelming og lendi framan á mér á 90 km hraða, held ég að ég velji frekar fyrri kostinn.
Ómar Ragnarsson, 11.2.2019 kl. 09:03
Kostur númer 3: Að fara aldrei út úr húsi.
Númer 4: Að flytja til Noregs.
Ómar Ragnarsson, 11.2.2019 kl. 09:05
Skrítið hvernig margir akandi tūristar skilja góðu umferðarmenninguna eftir heima
Hallgrímur Hrafn Gíslason, 11.2.2019 kl. 13:47
Þarna á standa turistar
Hallgrímur Hrafn Gíslason, 11.2.2019 kl. 13:49
Merkilegt hvað margir sjá ástæðu til
að skipta sér af því þó Ómar
kjósi að ferðast um á hjólfákum sínum.
Mætti halda að hann þyrfti að bregða sér í gerfi
Eyvindar og Höllu og ferðast um á tveimur misfljótum.
Þýskar rannsóknir benda eindregið til þess að
hæfni manna til að tolla á hjóli og koma því frá
einu hjólfari til annars er aldrei meiri en hjá fullorðnum
mönnum enda bendir síðuhafi á þetta sjálfur svo rækilega
að ætti að duga flestum til skilnings eða þar sem örlar
á einhverju slíku.
Hér að neðan má sjá örfáar skýrslur sem styðja mál síðuhafa
í einu og öllu að slepptum þeim 500 sem finna má hjá helstu framleiðendum
sem og í öryggisgátt ESB og EES.
Yfirlæknirinn (IP-tala skráð) 13.2.2019 kl. 11:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.