3.5.2019 | 15:49
ÍR-KR í körfunni - "Gömlu dagana gefðu mér!"
Þegar síðuhafi var íþróttafréttamaður á Sjónvarpinu voru það leikir ÍR og KR sem buðu upp á eitt nauðsynlegasta fyrirbærið í íþróttum: Einvígi þeirra bestu.
Ármenningar voru líka með gott lið sem gat líka gert góða hluti, en það var allt vitlaust á leikjunum þar sem baráttan stóð um toppinn.
Eini körfuboltamaðurinn, sem kjörinn var íþróttamaður ársins á sjöunda áratugnum var Kolbeinn Pálsson og hann var í KR-liðinu en fékk titilinn fyrst og fremst fyrir frammistöðu sína í landsliðinu.
Nú, hálfri öld síðar, er runnið upp ákveðið "dejavu" fyrir þeim sem muna hina gömlu tíð og geta raulað fyrir munni sér: "Gömlu dagana gefðu mér..."
Verður ekki of heitt á oddaleiknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.