24.8.2019 | 00:52
Kaupum fossa og fjöll...?
Flosi Ólafsson söng eitt sinn þessar ljóðlínur sínar í orðastað íslenskra valdamanna:
"Seljum fossa og fjöll;
föl er náttúran öll,
og landið mitt taki tröll!"
Viðskipti af þessu tagi virðast Bandaríkjaforseta afar hugleikin, þannig að af hans hálfu og hans manna gætu upphafslínur Flosa hljóðað svona:
"Kaupum fossa og fjöll!
Föl er náttúran öll,
segir Trump, valdatröll.
Repúblikanar selja Grænlandsboli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvað um svona endi?
"Kaupum fossa og fjöll!
Föl er náttúran öll...!"
Finnst það fávisku-tröll
Fast í trumpaðri höll.
Guðmundur H Guðjónsson (IP-tala skráð) 24.8.2019 kl. 10:44
Alveg fullgilt.
Ómar Ragnarsson, 24.8.2019 kl. 19:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.