Stórvirkjanirnar sex í Þjórsá-Tungnaá eru löngu komnar.

Þegar byrjað var á að virkja Þjórsá og Tungnaá fyrir meira en hálfri öld skorti íslensk fyrirtæki og heimili raforku, og sagt var að með því að fá stóriðju með í spilið, yrði gnægð ódýrrar raforku til fyrir okkur um alla framtíð. 

Einnig myndi rísa hér stórfelldur afleiddur iðnaðu við úrvinnslu úr álinu. 

Það stóð aldrei annað til en þetta ef Jón Gunnarsson skyldi ekki vita það og út í hött fyrir hann að fara að ræða um ef og hefði, sem aldrei gat orðið. 

Stóriðjan svonefnda var nú reyndar ekki nema 33 þús tonn í byrjun í Straumsvík og afleiddi álvöruiðnaðurinn kom aldrei, en nú hefur álframleiðslan til útflutnngs þrítugsfaldast síðan þá og það blasir auðvitað við, að það er hinn gríðarlegi vöxtur stóriðjunnar sem svelgir í sig 83 prósent af raforkuframleiðslu landsins en ekki friðanir á svæðum í verndarflokki. 

Öllu er snúið á haus með því að fullyrða, að orkuskortur til íslenskra fyrirtækja og heimila sé afleiðing af friðunum í samræmi við rammaáætlun og fráleitt að heimta stjórnarslit með slíkum rökum. 

 


mbl.is Þingmaður hótar stjórnarslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að gera umhverfisráðherra sem enginn kaus einráðan í verndunarmálum er ástæða til umhugsunar. Eitthvað segðu verndunarsinnar ef iðnaðarráðherra fengi alræði í virkjana og stóriðjumálum. Mundu jafnvel kalla það lögbrot og hóta stjórnarslitum, sem væri náttúrulega bara eðlilegt því allir sjá nauðsyn þess að vernda alla staði sem Kínverskir túristar gætu viljað nota í bakgrunn á selfí.

Vagn (IP-tala skráð) 6.9.2019 kl. 22:12

2 identicon

veit ekki betur en það skorti orku í raforkuskiptinn. ef ég tók jón rétt var hann að tala um ef engar virkjanir væru í þjórsá. og að umhverfisráðherra færi ekki eftir rammaáætlun. sem ég er samála það hefur verið farið fram stjórnarslit fyrir minna. ef stóriðjan hefði ekki komið til væri seinlega straumlaust í reykjavík um jól búrfell er of dýr fyrir almennan markað. 

kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 7.9.2019 kl. 07:15

3 identicon

Og svo trúa Svíar því núna þetta fari allt í Bitcoin

https://www.svt.se/nyheter/utrikes/uppblossad-konflikt-om-vattenkraftverk-pa-island

Grímur (IP-tala skráð) 7.9.2019 kl. 10:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband