19.9.2019 | 15:58
Úrbætur í húsnæðismálum hafa dregist allt of lengi.
Hvað ætli það séu mörg ár síðan ástandið í húsnæðismálum var augljóslega í óviðunandi lamasessi?
Það stig, sem hefur fengið heitið umræðustig, og virðist geta enst endalaust í mörgum svona málum án þess að úr rætist.
Og enn er verið að vandræðast á flesta lund þótt allt í kringum okkur séu lönd, þar sem skoða mætti ýmsar hliðar mála og hefði átt að vera búið að ljúka því fyrir löngu.
Yrði bylting á húsnæðismarkaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er snúið þegar nýir kaupendur vilja að það sé auðvelt án aukavinnu og fórna að kaupa nýja íbúð á besta stað. Leigjendur sem vilja leigja undir kostnaðarverði. Sveitarfélög sem eru treg til að gefa lóðir og bæta sér tekjutapið með skattahækkunum. Bankakerfi sem er ekki tilbúið til að tapa á lánveitingum. Byggingaverktaka sem ekki eru að byggja í sjálfboðavinnu og forðast að lenda í sömu klemmu og Félag eldri borgara. Verkalýðsfélög og hagsmunaaðila sem segja hálfsannleik um ástandið og kerfin í nágrannalöndunum. Og skattagreiðslur almennings sem valdaöflin vilja helst ekki nota til að niðurgreiða húsnæðiskostnað með beinum greiðslum og niðurfellingu skatta.
Vagn (IP-tala skráð) 19.9.2019 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.