29.11.2019 | 22:07
"...því sannleikurinn sjálfur er..."
Að undanförnu hefur mikið verið deilt um það hvort þær staðreyndir, sem bornar hafa verið á borð í flóknum álitamálum á borð við loftslagsmálin, séu réttar og fullnægjandi.
Sigrún Pálsdóttir upplýsir í viðtali á mbl.is að skáldsaga hennar, sem hún nefnir Delluferðina, sé sannsögulegur uppspuni.
Þetta minnir á stöku, sem ég skrifaði hjá mér fyrir mörgum árum á hagyrðingakvöldi einhvers staðar, er eftir Kristján Hreinsson og hljóðar svona:
"Lygin oft hið sanna sér
á sínu efsta stigi,
því sannleikurinn sjálfur er
sennilega lygi."
Sannsögulegur uppspuni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það vill skapa deilur þegar staðreyndirnar eru bara byggðar á staðfastri trú. Þegar vísindin eru tilgátur og mótrökin nægilega sterk til að æðstuprestar ræði í alvöru að setja efasemdarmenn í fjölmiðlabann.
Vagn (IP-tala skráð) 30.11.2019 kl. 02:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.