8.12.2019 | 23:50
Að ylja sér við hvítu og fallegu aðventustemninguna.
Enn er rúmur sólarhringur þar til "eitt versta veður vetrarins" á að skella á.
Kannski er skást, áður en allt brestur á, að nóta lognið á undan storminum til þess að bregða upp nokkrum ljósmyndum af stilltu veðri og fólki á öðrum sunnudegi aðventunnar.
Efsta myndin er tekin skammt frá Sólheimum i Grímsnesi með Hvítá og Hestfjall í baksýn.
Miðmyndin, "Máninn hátt á himni skín," er tekin við Minni-Borg.
En neðsta myndin, sem ætlunin er að setja hér inn til að ylja sér fyrir óveðrið, er tekin við á aðventumessu í kirkju Óháða safnarins í Reykjavík, síðar í kvöld.
Eitt versta veðrið í vændum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.