Það þarf líka að fara betur með trjávörurnar.

Við gerð þáttanna "Aðeins ein jörð" 1992 var því varpað upp, að ef allar þær þjóðir, sem lítið nota af salernispappír tækju upp á því að skeina sig, yrði fljótlega úti um skóga jarðar. 

Þetta er líklega ofmælt í hálfkæringi, en varpar þó út af fyrir sig ljósi á þann vanda, sem jarðarbúar standa frammi fyrir vegna þess hluta neysluæðis okkar tíma, sem skapar gríðarleg umhverfisvandamál. 

Það getur verið gaman að segja fólki frá því, að léttustu einshreyfils smáflugvélarnar í íslenska flugvélaflotanum, miðað við stærð og afköst, eru úr undraefni, sem fáir geta upp á, ef þeir eru beðnir að giska. BISA 1.6. 18.

Samanburðurinn í þessu tilfelli er á milli fjögurra sæta vél af gerðinni Jodel Dr-1050 og tveggja sæta vélar af gerðinni Cessna 152, sem er gerð úr áli.  

Vél af þessari gerð má sjá lengst til vinstri á myndinni frá Sauðárflugvelli. 

Síðarnefna vélin, Cessna 152, er nánast sama vélin og Cessna 150, er vinsælasta tveggja sæta kennsluflugvél allra tíma, og vegur um 540 kíló. Cessna 152´78

Jodel-vélin er hins vegar aðeins um 440 kíló, eða um 100 kílóum léttari, þótt hún taki tvöfalt fleiri í sæti og hafi 120 kílóum meiri burðargetu. 

Og hvert er það undraefni, sem gefur, auk hugvitssamlegrar hönnunar, slíka yfirburði yfir vélar úr léttmálminum áli? 

Jú, undraefnið nefnist trjáviður, nánar tiltekið krossviður, og er megin burðarvirki flugvélarinnar, þakinn með dúnlérefti, sem hefur verið gert hart með strekkilakki, svo að úr verður harður dúkur. 

Margar flugvélar úr málmi, eru þaktar með dúk, og kallaði Raggi Bjarna eina slíka, TF-GIN, sem notuð var í ferðum fyrir héraðsmótin í gamla daga, alltaf "pappavélina."

En flugvélar, að mestu úr trjáviði, hafa stundum verið kallaðar fljúgandi vindlakassar.

Nýjustu koltrefjaefnin, sem ryðja sér mjög til rúms í flugvélasmíði, mega hafa sig öll við til að standast samanburð við trjáviðinn. 


mbl.is Sífellt fleiri skipta út plastinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband