14.1.2020 | 07:18
Sendum tæki Jónasar Elíassonar til Filippseyja!
Vorið 2011 voru einföld mælingartæki, sem Jónas Elíasson prófessor hannaði og lét smíða, notuð til þess að mæla öskumagn við Faxaflóa í goosmekki, sem kom frá eldgosi í Grímsvötnum og náði þaðan að Selvogi og Þrengslum.
Hægt var að fljúga með þetta tæki og tvo mælingamenn í lítilli eins hreyfils flugvél í eigu Sverris Þóroddssonar og skiptust tveir flugmenn á við þetta sérkennilega mælingaflug.
Mynin er tekin á Selfossflugvelli við upphaf mælingaflugs, og stendur annar mælingamaðurinn í dyrum vélarinnar, en tækið er fyrir innan þær.
Neðst er mynd, tekin af mælingamönnunum að störfum.
Niðurstöður mælinganna voru lesnar af pappírsstrimli og sendar til London með reglulegu millibili á þann hátt að menn þar á bæ gætu lesið tölurnnar af pappír.
Hugsunin á bak við þessa aflestrarkröfu minntu á þekkta setningu úr verki Halldórs Laxness um skrifræðið í veldistíma Dana hér á landi: "Ertu með bréf upp á það?"
Miðjumyndina á síðunni tók Eggert Norðdahl við Hvolsvöll á meðan á gosinu í Eyjafjallajökli stóð 2010, en þá kviknaði hugmyndin um öskumælingaaðferðina, sem Jónas Elíasson útfærði þannig, að hægt var að nota hana í Grímsvatnagosinu ári síðar.
Ef þetta mælingaflug 2011 hefði ekki verið framkvæmt í sólarhring, hefði orðið að loka bæði Reykjavíkurflugvelli og Keflavíkurflugvelli vegna þess að ónákvæm öskuspá tölvu í London var notuð í eldgosunum 2010 og 20111 til þess grundvallar lokunar á flugstjórnarsvæðum vegna útreiknaðs öskufalls.
Í mælingunni fyrrnefndu kom í ljós, að miðað við þau takmörk, sem Alþjóða flugmálastofnunin setur fyrir flugi í gegnum öskumettað loft, hefðu mörk bannsvæðis geta legið við Selfoss þegar tæki Jónasar voru notuð í mælingaflugi á svæðinu þaðan vestur um Faxaflóa, sen flugið hófst á Selfossflugvelli í 5 kílómetra skyggni.
Allan mælingatímann var heiðskírt við Faxaflóa svo að Snfellsjökull og Snfellsnes blöstu við, séð frá Reykjavík og Keflavík, og eini staðurinn, þar sem örlítið frávik fannst á flugferlinum um flóasvæðið kom fram tvær sekúndur, þegar flogið var í þúsund feta hæð yfir Hellisheiðarvirkjun! Svona voru nú tækin nákvæm.
Jónas fór síðar með tæki sín til Japans til að prófa þau í smágosi þar og flutti um þá ferð fyrirlestur við Háskóla Íslands.
Farið að líkjast öskufallinu úr Eyjafjallajökli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.