1.2.2020 | 18:24
Skemmtilegur bíll með breska fánann.
Bíllinn á myndinni, sem fylgir frétt á mbl.is um fögnuð Brexit-sinna sem blandin er óvissu um það, hvað muni breytast, er skemmtilega valinn.
Ástæðurnar fyrir því geta verið afar margvíslegar, svo sem það hvort þetta geti verið táknum það, að mjór sé mikils vísir, eða að saga bílsins sé ekki beinlínis bresk, heldur þvert á móti.
Hann heitir Isetta, var upphaflega ítölsk uppfinning og smíð en varð svo vinsæll, að BMW verksmiðjurnar fengu leyfi til að selja hann á síðari hluta sjötta áratugarins og fram yfir 1960.
Bretar kræktu sér líka í leyfi og seldu sína útgáfu. Þetta er tveggja sæta örbíll með 295 cc eins strokks loftkældum fjórgengis vélhjólshreyfli. Gengið er inn og út úr bílnum að framan, já, að framan, eins og sést á myndinni, og það eru engar dyr á hliðunum.
Fyrir bragðið er hægt að leggja honum þversum við gangstétt og ganga beint upp á gangstéttina.
Og af því að engar dyr eru á hliðunum, geta fjórir svona bílar verið þversum í einu stæði.
Nú stendur yfir tilraun til að endurvekja þessa hönnun á svipuðum rafknúnum bíl, sem heitir Microlino, nær yfir 90 km hraða og er með meira en 100 km drægni.
Tafir hafa orðið á framleiðslu vegna deilna málaferla um framleiðslu nær alveg eins bíls, sem ber heitið Carolino.
Brexit: Hvað er breytt? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Áhugavert að þetta skuli vera samevrópskur bíll!
Þorsteinn Siglaugsson, 1.2.2020 kl. 19:05
Þetta var öndvegis farkostur sem ég keyrði miki i með nafna mínum Dóa Gísla sem átti svona bíl.Alveg þrælmagnað apparat
Halldór Jónsson, 1.2.2020 kl. 21:24
Messerschmitt KR200 er nú flottari á sínum 3 hjólum
Grímur (IP-tala skráð) 2.2.2020 kl. 02:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.