14.3.2020 | 23:53
Þar fauk þetta vildarsvæði Trumps.
Yfirgnæfandi umsvif og eignir Donalds Trumps eru á Bretlandseyjum og má ætla að það hefði komið sér vel fyrir hann að halda Stóra-Bretlandi og Írlandi utan við ferðabannið mikla.
En það tókst ekki nema í nokkra daga að viðhalda flugfrelsinu þaðan yfir Atlantshafið og nú hefur líka verið sungið "Lok, lok og læs og allt í stáli" um þessi eylönd, sem hafa verið svo gjöful fyrir hann.
Trump útvíkkar ferðabannið til Bretlands og Írlands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Margar sviðsmyndir og þræðir liggja alltaf að baki. "Einkareksturinn" hefur margar hliðar. Gefur einum lífsanda og öðrum lifibrauð. Öðrum tilefni til að anda köldu ofan í hálsmál þeirra sem velja sér að starfa á ótryggri sjávarmölinni, í sjálfstæðum atvinnurekstri. Þeir eru rannsakaðir, tættir sundur og saman, tortryggir, oft í órökstuddum spuna af her manna hjá "okkar allra". Skyldi Donald okkar vera inni í þessari spegilmynd? Hver er annars forseti litla mannsins?
Sigurður Antonsson, 15.3.2020 kl. 08:25
Margaret Thatcher fv. forsætisráðherra Bretlands var oft kölluð Járnfrúin spurning hvort Trump eigi eftir að fá nafnið Stálnefinn.
Baldvin Nielsen
B.N. (IP-tala skráð) 15.3.2020 kl. 22:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.