15.3.2020 | 12:09
Svæði með eldgosasögu.
Eftir að nútíma mælitækni hefur verið tekin í notkun í stórauknum mæli á hinum eldvirka hluta Íslands hefur komið í ljós, að í línu norður frá vestanverðum og norðvestanveðum Vatnajökli ef skjálftasvæði, sem teygir sig um Öskju norður fyrir Herðubreið, þar sem nú er skjálftahrina.
Í skjálftahrinu, sem hófst sumarið 2007 við Upptyppinga færði hún sig rólega norður eftir Krepputungu og endaði skammt fyrir norðan Herðubreið.
Svæðið norðan Herðubreiðar á sér þekkta eldgosasögu í kjölfar Öskjugossins mikla 1875, en þá gaus í Sveinagjá.
Sjálf er Herðubreið, þjóðarfjallið, stórt eldfjall, sem gaus undir ísaldarjökli, og má lýsa með þessum línum úr ljóðinu "Kóróna landsins":
Í ísaldarfrosti var fjallanna dís
fjötruð í jökulsins skalla
uns Herðubreið þrýsti sér upp gegnum ís,
öskunni spjó og lét falla.
Er frerinn var horfinn var frægð hennar vís;
svo frábær er sköpunin snjalla.
Dýrleg á sléttunni draumfögur rís
drottning íslenskra fjalla!
Að sjá slíkan tind
sindra í lind!
Og blómskrúðið bjart
við brunahraun svart!
Jarðskjálfti 3,2 að stærð norður af Herðubreið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.