Á þessum tíma takmarkana af ótal gerðum varðandi það að rjúfa smitleiðir heimsfarsóttar má finna möguleika á því að gefa 2ja metrunni meira en hundrað kílómetra langt nef.
Og framkvæma þar með það, sem Bjarni Atlason hefur sungið inn; úr heimasmiðju lagið "Gegn háska um páska" sem er komið á facebook síðu mína.
Það eru nefnilega forréttindi fólgin í því að geta risið úr rekkju á morgnana, sitja við skrifborðsvinnu á daginn og leggjast í hvílu á kvöldin og geta samfellt horft á Snæfellsjökul í 120 kílómetra loftlínu yfir Faxaflóa, ef skyggni leyfir.
120 þúsund metra regla í gildi, 60 þúsund lengri vegalengd en þarf til að vara "samtaka að hlýða Víði" eins og segir í textanum.
Mega fara á ströndina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.