9.6.2020 | 21:41
Bandarísk útgáfa af silfri Egils.
Sagan af þeirri hugmynd Egils Skallagrímssonar að dreifa silfri sínu yfir Alþingi á Þingvöllum, og "myndi þá þingheimur berjast,", honum til mikillar skemmtunar; hefur löngum verið ein þekkasta "hvað, ef-" sagan af svona tagi í heimsbókmenntunum.
Sagan sýnir áhuga og álit fornkappans á mannlegu eðli, og hin bandaríska útgafa af hugmynd í stíl silfurs Egils, milljóndala fjársjóðskistan í Klettafjöllunum í Norður-Ameríku, hefur raunar sannast í gegnum aldirnar á mörgum stöðum í vestanverðu víðerninu, þar sem rústir eru enn af heilu draugabæjunum og þorpunum, sem risu þegar gullæði af ýmsu tagi rann á þúsundir manna, er þeir flykktust á ímyndaðar eða raunverulegar slóðir mikilla auðæfa í jörðu.
Egill reiknaði með mannfalli og fjðlda særðra manna í sinni hugsýn, og hinn bandaríski Egill, sem greint er frá í tengdri frétt á mbl.is, hefði kannski átt að lesa Eglu, áður en hann varð til þess, að vísu óbeint, að fjórir menn létu lífið í misheppnaðri leit að auðæfunum í fjöllunum.
Fann milljón dala fjársjóðskistu á fjöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.