29.6.2020 | 17:36
Glampandi Gullinbrú.
Arum og áratugum saman hefur svona sjón blasað við vegfarendum um allt gatna- og vegakerfið án þess neitt mark hafi verið tekið á þeim, sem hafa bent á þá lúmsku hættu, sem hið eggslétta yfirborð hefur búið yfir.
Þessar myndir voru teknar á Gullinbrú í dag, en þetta slitlag var svo sannarlega eins og skautasvell síðastliðinn laugardag þegar það var lagt.
Ljós bílanna speglast í yfirborðinu á neðri myndinni.
Slikar framkvæmdir eru að sönnu bráðnauðsynlegar til að endurnýja slitlagið og koma í veg fyrir að hjólin myndi með slitáhrifum nagladekkjanna vatnsrásir í malbikið, sem geta orðið fullar af vatni, þannig að dekkin á bílunum fljóti ofan á og missi grip.
Sú hætta er lúmsk rétt eins og hættan á því að skauta á nýlögðu malbikinu að sumarlagi.
Nú verða vonandi gerðar umbætur í öryggisátt.
Var mun hálli en kröfur eru gerðar um | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.