27.11.2020 | 01:38
Verđur ekki ađ fara ađ taka Thanksgiving og ţriđjudag og miđvikudag međ?
Fyrir rúmum ţrjú hundruđ árum tóku nokkrir tugir Evrópubúa land í Massachusetts og var ţar tekinn upp ţakkargjörđardagur af ţví tilefni, sem Íslendingar hljóta ađ kalla Thanksgivin Day til ađ vera menn međ mönnum.
Smám saman breiddist hann út vestra og er frídagur síđasta fimmtudaginn í nóvember, ađ hluta til uppskeruhátíđ líkt og töđugjöldin voru hér á landi, sem aldrei voru ţó gerđ ađ frídegi.
Af ţví ađ föstudagurinn á eftir Thanksgiving er klemmdur einn og sér á milli Thanksgiving og helgarinnar ţar á eftir sáu kaupahéđnar sér hag í ţví ađ blása hann upp sem sérstakan ofurverslunardag undir heitinu Black Friday.
Ţegar netverslun fór ađ blómstra sáu kaupahéđnar enn leik á borđi og tóku upp fyrirbćriđ Cyber Monday til ađ kóróna allt tilstandiđ, sem er auđvitađ líka hér út af landtöku hóps af fólki fyrir langalöngu á austurströnd Bandaríkjanna, sem aldrei hafđi nein tengsl viđ íslenska sögu.
Ţađ leiđir hugann ađ Thanksgiving Day, sem var upphaflega forsendan fyrir Black Friday og Cyber Monday.
Nú hlýtur nćsta skref í snobbinu hér á landi fyrir sögu enskumćlandi ţjóđa Ameríku ađ gera gangskör ađ ţví ađ viđ tökum Thanksgiving Day upp sem löggiltan fridag međ öllu ţví mikla tilstandi sem frídagar geta haft.
Ţá ţarf ekki annađ en ađ bćta viđ ţriđjudegi og miđvikudegi til ţess ađ ţetta verđi vika, sem verđur heilagri og merkilegri á alla lund en jól, páskar eđa nokkur önnur hátíđ hér á landi.
Og svo merkilegur er Black Friday orđinn, ađ ţađ er sérstök frétt ađ ţessi stórhátiđardagur hefjist á miđnćtti!
Og út af tilefni sem aldrei snerti okkur eđa okkar sögu neitt.
Svartur föstudagur hefst á miđnćtti | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
Ég held ađ ţađ hafi heldur ekki snert okkur eđa okkar sögu neitt ţegar viđ hófum ađ halda upp á merkisdaga í lífi gyđings sem var drepinn af Rómverjum 1000 árum fyrr. Mánuđirnir koma frá Róm og ekki sé ég víkingana fyrir mér fastandi á föstudögum. Veitingamađur á Naustinu kom ţorrablótum í ţjóđarsálina á miđri síđustu öld. Bćjarhátíđir, ađrar en Ţjóđhátíđ í Vestmannaeyjum, ţekktust bara í útlöndum í minni ćsku. Og ekki var ţađ gróđurfar og veđur sem setti sumardaginn fyrsta í Apríl.
12345 er frá Arabíu og abcde frá Ítalíu. Rokk og ról, óperur og sinfóníuhljómsveitir fundu áar okkar ekki upp. Pizza, hamborgari, pasta og prentverk er ekki ćttađ úr Borgarfirđinum. o.s.frv. o.s.frv.
Vagn (IP-tala skráđ) 27.11.2020 kl. 04:04
Sumardagurinn fyrsti er eins alíslenskur og viđeigandi og hugsast getur hjá ţjóđ ţar sem árstíđaskiptin eru eins mikill ţáttur í lífi hennar.
Ţađ er rétt hálft ár á milli fyrsta sumardags og fyrsta vetrardags og međalhitinn er álíka á báđum dögum, í kringum 4 stig.
Farfuglarnir eru koma í sumarbyrjun og fara á haustin. menn taka vetrardekkin undan bílunum ađ jafnađi í lok apríl og setja undir í lok október.
Ómar Ragnarsson, 27.11.2020 kl. 12:21
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.