28.12.2020 | 08:41
Samræðustjórnmál hjá Trump og Sanders?
Undanfarna daga hefur staðið yfir eins konar skotgrafa- og störukeppni þings og forseta í Bandaríkjunum um neyðaraðstoð til þjóðarinnar vegna kórónaveirunnar.
Ekki í fyrsta skipti sem svipað hefur gerst í forsetatíð Donalds Trump.
Eftir að mjög ríflegur þingmeirihluti hafði fengist fyrir aðstoð, að því er virtist á þann hátt að leita að lægsta samnefnara, neitaði Trump að skrifa undir staðfestingu á því sem hann taldi réttilega vera skammarlega lága aðstoð.
Í hönd fór eins konar bland af sandkassaleik og skotgrafahernaði þar sem stefndi í það óefni að þeir, sem mest þurftu á þessari hjálp að halda, töpuðu mest, það er, öllu.
En þá gerðist hið óvænta.
Í gær fóru af stað, að því er virtist, eins konar samræðustjórnmál að frumkvæði Bernie Sanders, þar sem Sanders talaði mannamál við forsetann, ein hvern veginn svona: "Hættum nú þessum fíflagangi og náum saman. Þú skrifar fyrst undir frumvarpið svo að hjálpin geti farið í gang án frekara tjóns, og í framhaldinu samþykkjum við viðbótar ráðstafanir sem nemur upphæðinni þinni."
Málið dautt?
Trump samþykkir neyðaraðstoð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.