15.6.2021 | 19:16
Margþættar breytingar líklegastar til árangurs.
Margþættar breytingar og aðgerðir í umferðarmálum eru líklegastar til árangurs við það verkefni að leysa vandann vegna sífellt vaxandi álags á samgöngumannvirkin, sem eiga að aana bæði mikilli fólksfjölgun og líka að hafa hemil á samsvarandi stórfjölgun bíla upp á tugi þúsunda. Setjum númer á nokkur atriði.
1. Endurbætur á gatnakerfinu í gegnum mislæg gatnamót, sað setja helstu umferðaræðar í stokka og fullgera Sundabraut.
2. Hröðun stýringar á stefnuljósum til að minnka tafir við þau.
3. Efling almenningssamgangna svo sem léttrar útgáfu af Borgarlínu og betri þjónustu strætisvagna.
4. Mæta fjölgun einkabíla og þess rýmis sem þeir taka á götunum með aðgerðum, sem fækkar stórum bílum en fjölgar litlum bílum, sem eru að koma til skjalanna í nýju módeli af borgarsamgöngum smærri farartakja, sem er að hefjast í Evrópu.
5. Efla kerfi hjólastíga og göngustíga og gera það skilvirkara, svo sem með svonefndum hraðastígum.
Miklabrautin ógn við lífsgæði og heilsu fólks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.