Vandlifað hjá þríeykinu.

Nú er sótt að þríeykinu svonefnda með gagnrýnisröddum úr öllum áttum. Hjá sumum hafa þær raddir breyst á síðustu sex vikum. Má þar nefna suma þá sömu sem vildu opna allt fyrir enn freka fyrir sex vikum en hamast nú gegn afleiðingum þess. 

Nú eru uppi háværar raddir um að hætta öllum bólusetningum á sama tíma og víðtækasta smitbylgjan í sögu faraldursins fer með himinskautum og  það rökstutt með því að þá muni allt fara á skárri veg. 

Bandaríkjamenn voru lofaðir fyrir það að opna fyrir ferðir þaðan til Íslands þegar allt var grænt en nú má heyra gagnrýni, jafnvel frá hinum sömu þess efnis að þeir eigi ekkert með það að banna för Bandaríkjamanna til Íslands. 


mbl.is Funda um aðgerðir, bólusetningar og skólastarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þormar

Baráttan við Covid-19 er líkari stríði heldur en nokkuð það sem núverandi kynslóð á Vesturlöndum hefur upplifað.

Mér verður hugsað til Churchills þegar hann skipaði breskri hersveit í nágrenni Dunkirk að berjast til síðasta manns á meðan verið var að bjarga meginhernum. Einnig þegar hann lét ráðast á franska flotann í Alsír og sökkva honum, en þar létu 1300 franskir sjóliðar lífið.

Þetta eru að vísu mjög öfgafull dæmi, en þau sýna að það er ekki alltaf auðvelt að taka "réttar" ákvarðanir.

Hörður Þormar, 10.8.2021 kl. 14:26

2 identicon

Sæll Ómar, 

Það er greinilegt á öllu að menn vilja halda þessu leikriti áfram með þessum PCR prófum sem að víða erlendis eru þekkt fyrir falskar jákvæðar niðurstöður. Það ætti að vera búið að banna Heilbrigðisyfirvöldum hér að nota þessi PCR próf af þeirri ástæðu. Portúgalskur áfrýjunardómstóll hefur úrskurðað að PCR próf séu óáreiðanleg og að það sé ólögmætt að setja fólk í sóttkví byggt eingöngu á þeim. Aðrir dómsstólar í Þýskalandi, Austurríki og Hollandi hafa einnig úrskurðað að PCR próf séu ekki áreiðanleg til að greina Covid19 og í því sambandi hafi þessar lokanir og annað engan vísindalegan og/eða lagalegan grundvöll. Hér á landi er m.a. ennþá verið að segja við heilbrigt fólki aftur og aftur að það sé veikt (eða smitað). Þetta er allt samkvæmt áætluninni að halda þessu leikriti svona áfram með að keyra þetta yfir 35 snúninga hringrásar mögnunar þröskuldinn, þar sem að slíkt framkallar allt að því 97% falskar jákvæðar niðurstöður (Clinical Infectious Diseases ciaa 1491 (28. sept. 2020), https://doi.org/10.1093/cid/ciaa1491), eða svo að menn geti áfram öskrað smit, smit, smit og fleiri smit í öllum þessum hræðsluáróðri og til að halda þessu leikriti áfram á þessu farsóttarstigi. Hér er allt keyrt á þessum 40 snúninga hringrásar mögnunar þröskuld til að framkalla fleiri, fleiri falskar jákvæðar niðurstöður ásamt því að notast við þetta smitrakningar-app til að koma inn þessum bólusetningu m. a. eins og segir með að styðjast við þessa líka lélegu hækju (eða PCR próf) er hefur EKKI NEIN "GOLD STANDARD". Þessir líka lélegu ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðlar gera bókstaflega allt til þessa að halda uppi hræðsluáróðnum til að koma inn þessum bólusetningum, nú og þrátt fyrir að þeir viti allir að þessar bólusetningar virka núna ekki neitt.

Við vitum að þessir líka ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðlar hér munu aldrei fjalla um þessi 26 dauðsföll eftir bólusetningar, hvað þá fjalla um þessar 2.742 aukaverkanir eða hvað þá nafngreina og/eða fjalla um þessar 168 alverlegu aukaverkanir eftir bólusetningar (https://www.lyfjastofnun.is/lyf/covid-19/aukaverkanatilkynningar-vegna-covid-19/). eða allt til að koma inn bólusetningum.
Þrátt fyrir að heilbrigðisyfirvöld sé kunnugt um allar þessar 1600 alvarlegar aukaverkanir á tíðarhringnum eftir bólusetningar, þá er aðalmálið núna hjá þeim að reyna troða þessum bóluefnum í börn og unglinga, sérstaklega þar sem að vitað er um þessar 1600 alvarlegar aukaverkanir á tíðarhringnum eftir bólusetningar, því að þarf að reyna halda öllu þessu leikriti áfram með fleiri, fleiri tilrauna-bóluefnum samkvæmt þessari áætlun (hér fyrir neðan) fram til febrúar 2023, sama hvað fólk segir, ekki satt? 


May be an image of 1 person and text
 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.8.2021 kl. 14:49

3 Smámynd: Hörður Þormar

Sæll Þorsteinn.

Ísraelsmenn eru meðal þeirra þjóða þar sem flestir hafa verið bólusettir. Þar mun nú eiga að fara að bólusetja börn.

Heldur þú virkilega að það sé ætlun ísraelskra yfirvalda að framkvæma "þjóðarsjálfsmorð" á Gyðingaþjóðinni?

Hörður Þormar, 10.8.2021 kl. 15:34

4 Smámynd: Grímur Kjartansson

Fyrst eftir hrun var sagt að fólk væri reitt
en núna er fólk bara hrætt
Ég er heilsuhraustur og fullbólusettur en verða að taka undir með hinu síðarnefnda

Maður hnerrar eða finnst maður eitthvað slappur þá hugsar maður um Covid og dauðann meir en maður ætti að gera

Grímur Kjartansson, 10.8.2021 kl. 17:45

5 identicon


Sæll Hörður,

Bólusettir halda áfram að smita bólusetta, og því er ekki til eitthvað sem að heitir hjarðónæmi í Ísrael eða annarsstaðar í heiminum eftir þessar bólusetningar, hvað þá eftir þessa þriðju bólusetningu. Eins og ég hef verið að benda á þá fylgir þessum bólusetningum meiri áhætta, heldur en fá bara covid-19 veikindi, fyrir utan það þá virkar þetta eiturefna-drasl(e.neurotoxins) ekki neitt, og hvað þá kemur í veg fyrir smit, þú? Það er nákvæmlega engin lækning í eiturefnum (fyrir utan það er nákvæmlega ekkert innihaldefni í bóluefninu sem að læknar fólk). Nú ef þú flettir upp orðinu "coronavirus", eða samkvæmt American Medical Association Encyclopedia of Medicine, þá er þeim veikindum lýst sem "common cold" og þá eru við að tala um kvef eða flensu.     

Hér á landi er búið að hafa yfir 180 sjónvarpsþætti með þessu líka lélega og ömurlega þríeyki, er hefur aldrei einu sinni talað til þeirra sem eru veikir heima með þessi covid-19 veikindi, þrátt fyrir að til séu meðferðir og margt til styrkja ónæmiskerfið eins og til D og C vítamín, nú og ásamt zinc. Heldur hafa allir þessir þættir verið til þess eins að koma inn hræðsluáróðrinum um smit, tölur, tveggja metra reglu og spritta aftur og aftur.           

Þið hljótið að þurfa tilkynna mig til heilbrigðisyfirvalda, þar sem að ég óttast ekki covid-19 veikindi eða smit. 
KV.

 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.8.2021 kl. 19:26

6 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.8.2021 kl. 19:54

7 identicon

May be an image of one or more people and text that says 'NBC News is reporting that new data suggests VACCINATED people have higher levels of virus in them and can infect other people. That would mean the new surge may be caused by them not the unvaccinated. USA TODAY Subscribe Sign In NBC News, citing unnamed officials aware of the decision, reported it comes after new data suggests vaccinated individuals could have higher levels of virus and infect others amid the surge of cases driven by the delta variant of'

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.8.2021 kl. 20:32

8 Smámynd: Hörður Þormar

Ja hérna, Þorsteinn!

Þú ert greinilega með tíðindi sem Ísraelsmenn hafa ekki heyrt.

Kv.

Hörður Þormar, 10.8.2021 kl. 21:18

9 identicon

Sæll Ómar!

Mit sværd er væk, - jeg dør af skræk!

Húsari. (IP-tala skráð) 11.8.2021 kl. 01:13

10 identicon

May be an image of text

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 11.8.2021 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband