3.9.2021 | 00:47
Nútíma Dunkirk.
Bretum tókst að bjarga 338 þúsund hermönnum sínum yfir Ermasund frá Dunkirk á Frakklandsströnd.
En þeir neyddust til að skilja eftir nær öll hergögn þessa hers og þau féllu í hendur óvinanna.
Það fer allt eftir aðstæðum, hve mikið af hergögnum flúins hers fellur í óvinahendur.
Ef flóttahermennirnir verða að nýta allt sitt afl til að verja flóttann, er ekkert óeðlilegt við það að eyðing hergagna verði ekki í forgangi.
Í Afganistan var ætlunin að stjórnarherinn fengi hergögnin, en í ljós kom að hann hafði engan áhuga á að verjast og gerði svipað og Glistrup lagði til við Dani þegar Kalda stríðið stóð sem hæst, en það var bregðast þannig við innrás Sovétmanna að láta danska símsvara segja í sibylju: Við gefumst upp.
Talíbanar sýna herfangið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Öll lönd skrúfuðu fyrir fjárhagsaðstoð til Afganistan þegar í ljós koma að Talibanar væru þar við völd. Þetta eru ótrúlega háar fjárhæðir sem USA, Norðurlöndin, Þýskaland og fl. hafa verið að senda til Afganistan í formi þróunaraðstoðar og nú er þessum löndum vandi á höndum því allar líkur eru á að almenningur í Afganistan muni nú svelta vegna bágborins efnahagsástands
Lausnin í bili gæti verið að kaupa af Talibönunum hergögnin sem skilin voru eftir
Grímur Kjartansson, 3.9.2021 kl. 10:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.