29.9.2021 | 12:28
Endalaust skæklatog, hlutverkaskipting sveitarfélaga og ríkisins.
Síðustu áratugi hafa hlutverkaskipti ríkis og sveitarfélaga í fjárútlátum vegna alls konar þjónustu verið nær samfellt viðfangsefni og margs kyns deiluefni.
Má sem dæmi nefna þjónustu við fatlaða og aldraða, en síðarnefnda atriðið, ófremdarástand í málefnum aldraðra, er einmitt búið að vera ofarlega á baugi síðustu vikurnar.
Hefur komið í ljós að í nágrannalöndunum er hlutur sveitarfélaga meiri en hér og hlutur hjúkrunarheimila minni.
Í hvert skipti sem eitthvað nýtt kemur upp í viðfangsefnum hins opinbera, svo sem varðandi fráveitur og skólp, kemur upp deila um það hver eigi að borga brúsann og geta upphæðirnar numið tugum milljarða á hverju ári.
Telja 20-25 milljarða lagða á sveitarfélögin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.