Talningarmálið í Norðvesturkjördæmi á sér nokkrar hliðstæður hér á landi og erlendis hvað snertir það að kosning hafi ekki verið ógilt þótt skort hafi á að öllum framkvæmdaatriði hafi verið rétt framkvæmt upp á punkt og prik.
Hafa tvö þeirra verið nefnd áður hér á síðunni, úrskurður stjórnlagadómstóls í Þýskalandi og úrskurður varðandi mistök vegna kjördæmamarka vestast í Reykavík.
Í báðum tilvikum var farið vandlega yfir öll gögn og það fundið út, að misfellurnar hefðu engin áhrif haft á úrslit kosninganna.
Í þýska dæminu höfðu misfellurnar viðgengist í mörgum kosningum, en niðurstaða dómstólsins varð að láta úrslit allra kosninganna standa en beita hins vegar viðurlögum í formi sekta og fyrirskipunum um breytingar á framkvæmdinni framvegis.
Það er hins vegar ágætt að kært sé í svona tilfellum, svo að hægt sé að fara sem best ofan í saumana á svona málum og sjá, hvort misræmi verði á milli dómstóla í málunum.
Í Borgarnesmálinu eru fyrir hendi næg gögn, svo sem eftirlitsmyndavélar og vitnisburðir, endurtalning og væntanlega yfirferð yfir ógild atkvæði, til þess að sýna, hvort útkoman eftir endurtalninguna hafi verið rétt
![]() |
Ekki hægt að styðjast við tölur út frá lögbroti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Ómar Fjölfræðingur (Polyhistor); sem og aðrir gestir, þínir !
Kongó- skæruliðum; væri betur trúandi til, að fara með allra handanna kjörgögn, fremur en Inga Tryggvasyni og hans Siðblindingjaflokki (oft nefndur Sjálfstæðisflokkur; af einhverri tilgangslausri og óskiljanlegri kurteisi), Ómar minn.
Meira að segja; Gunnar Örn Jónsson, hjer fyrr meir alla vegana yfirlýstur stuðningsmaður útúrboru- og ræfla og þjófaflokks Inga Tryggvasonar (fyrrum samstarfsmaður minn í Selfossdeild Húsamiðjunnar:: í kringum síðustu aldamót) og núverandi Lögreglustjóri á Vesturlandi, fann sig knúinn til að sekta Inga og meðreiðar lið hans, sökum vanhalda á kjörgögnunum, frá 25. September s.l.
Ertu ekki ennþá; farinn að átta þig á Ómar, við hvers lags foraðs og vilpulið er að etja, þar sem eru taglhnýtingar Ásmundarsalar- Bjarna Benediktssonar - Katrínar grettu Jakobsdóttur og hins ofur- lánlausa Sigurðar Inga Jóhannssonar ?
Svo; má ekki gleyma, fláræði og undirmálaíþróttum Birgis nokkurs Ármannssonar, og hinnar kúnstugu og fáránlegu eftirlitsnefndar hans:: svo kallaðrar.
Annarrs; virðist vitnisburður Kára Stefánssonar erfðavísindamanns frá því sumar um heimsku þorra Íslendinga, ætla að sannazt rækilega, fái svindlararnir í Norð- vesturkjördæmi að komazt upp með scandala sína, eins og þeir stefna ljóslega að - nema; Vestlendingar - Vestfirðingar og Norðlendingar vestanverðir:: sem, og aðrir landsmenn rísi upp gegn þessum ófögnuði, sem þarna er á ferðinni.
Og; að endingu Ómar minn.
Dómstólunum; kemur þetta mál ekkert við - það er landsmanna sjálfra, að kveða upp úr með þetta / með nýjum kosningum, þar sem bjóða mætti fulltrúum frá Ameríkunum þrem - Afríku sem og Asíu, að fylgjast með þeim kosningum, svo vandræðalaust mættu fara, síðuhafi vísi.
Með beztu kveðjum; engu að síður - af Suðurlandi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.10.2021 kl. 18:21
Sammála er ég heiðursmanninum Óskari Helga. Kjósa aftur takk annars verður þetta eilífðar þrætuepli og langavitleysa. Skrýplaskerið Ísland stendur undir nafni þessa dagana.
Ragna Birgisdóttir, 20.10.2021 kl. 20:31
Þá er það einnig ljóst að valdahlutföll breytast ekki það er bara spurning um í hvaða kjördæmi þingmaðurinn er hvort það sé jón eða Gunna sem eru á þingi ekket að þessu
Jón Ólafur Vilhjálmsson, 20.10.2021 kl. 21:48
Komið þið sæl; á ný !
Ragna !
Þakka þjer; drengilegar undirtektirnar, sem þín var von og vísan, til.
Jón Ólafur; minn gamli góði samstarfsmaður, hjá Kaupfélagi Árnesinga !
Ekkert að þessu; kveður þú:: líklegast ennþá tiltöluulega mengaður af Framsóknarmennzku Sigurðar Inga, og hans Engeyinga- Samherja aðdáenda hóps.
Hví; ættu þá Íslendingar / fremur en aðrir, að sproksetja stjórnarhætti Alexanders Grigorivich Lukashenko og hans manna austur í Hvíta- Rússlandi t.d., en geta ekki með nokkru móti sjeð pólitíska mykjuhaugana hjer heima fyrir, Jón minn ?
Sömu kveðjur - sem fyrri /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.10.2021 kl. 21:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.