23.11.2021 | 23:32
Tyrkland, land á mörkum tveggja heima.
Nágrannalöndin tvö, austast við Miðjarðarhafið, Grikkland og Tyrkland eiga að baki brokkgengan feril hvað snertir lýðræði og alræði, og Tyrkland er á sýnu erfiðari stað, sem meðal annars sést af því að hluti landsins er í Evrópu en meginhlutinn í Asíu.
Þar að auki er landið loka yfirráðasvæði fyrrum múslimsks stórveldis.
Tyrkland er í NATO en hefur oft spilað djarft spil í útanríkismálum vegna nálægðarinnar við Rússland, þótt haf skilji á milli.
Tyrkir fóru í Fyrri heimsstyrjöldinni í bein hernaðarátök við Breta, sem biðu greypilegan ósigur við Gallipoli.
Tyrkir sóttu lengi vel fast að komast inn í ESB, en ESB dró lappirnar í þeim efnum.
Atburðirnir, sem hafa orðið í valdatíð Erdogans, eru eitt af mörgum dæmum um það hve fráleit innganga í bandalagið hefði verið og er enn.
Þetta er valdarán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.